EN

Til baka í yfirlit

4. september 2026

Opnað fyrir 50 milljóna króna úthlutun til vinnustaðaklasa

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki til uppbyggingar vinnustaðaklasa á landsbyggðinni. Samtök sunnlenskra sveitarfélaga hvetja frumkvöðla, fyrirtæki og sveitarfélög á Suðurlandi til að nýta sér þetta tækifæri til að efla atvinnulíf og fjölga óstaðbundnum störfum í heimabyggð. Umsóknarfrestur rennur út á hádegi mánudaginn 28. september næstkomandi.

Til ráðstöfunar að þessu sinni eru allt að 50 milljónir króna. Þetta er í annað sinn sem innviðaráðherra auglýsir eftir umsóknum um þessi framlög, sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar. Byggðastofnun heldur utan um umsýslu styrkjanna.

Efling fjölbreyttra starfa í heimabyggð

Markmiðið með styrkjunum er að efla búsetufrelsi með því að fjölga atvinnutækifærum og auka fjölbreytni starfa. Vinnustaðaklasi er skilgreindur sem skipulagt og samnýtt vinnurými – hvort sem er í opnu rými eða lokuðum skrifstofum – þar sem fjölbreytt aðstaða stendur fleiri en einum vinnustað til boða. Lágmarkskrafa er að notendur hafi aðgang að fundaraðstöðu, sameiginlegri kaffiaðstöðu og öflugri nettengingu.

Þrír flokkar styrkja í boði Hægt er að sækja um þrjár tegundir framlaga til reksturs vinnustaðaklasa:

  • Launakostnaður: Einskiptisframlög í allt að sex mánuði til að koma af stað nýrri starfsemi (allt að 80% af raunkostnaði, hámark 4 m.kr.).
  • Fjölgun plássa: Styrkir til að fjölga vinnuplássum gegn langtímaskuldbindingu um nýtingu þeirra.
  • Rekstrarstyrkir: Til að greiða sameiginlegan kostnað við starfsemina (hámark 1. m.kr. á ári, þó að hámarki 80% af kostnaði).

Umsóknir skulu berast í gegnum rafrænt umsóknarform á vef Byggðastofnunar. Nánari upplýsingar og úthlutunarreglur má finna HÉR.