19. febrúar 2015
Menntalestin vorönn 2015

Önnur Menntalest Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga fer af stað 13. mars 2015, en Menntalestin á Suðurlandi er eitt af verkefnum Sóknaráætlunar Suðurlands. Að þessu sinni er sjónum beint að framhaldsskólum á Suðurlandi, en fyrstu lestinni var beint að grunnskólanemendum og sköpun í skólastarfi. Markmið Menntalestarinnar að þessu sinni er að vekja áhuga á tækni og vísindum. Samið var við Háskólalestina um að setja upp "vísindatorg" í öllum fjórum framhaldsskólunum á Suðurlandi.
Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu
föstudagur
13. mars
Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum
föstudagur
10. apríl
Menntaskólinn á Laugarvatni
þriðjudagur
14. apríl
Fjölbrautaskóli Suðurlands
miðvikudagur
15. apríl
Vísindatorgið mun standa yfir í u.þ.b. 4 klst. á hverjum stað og verður lögð áhersla á að nemendur og kennarar geti upplifað viðburði torgsins með því að sjá, heyra og taka þátt.



