Til baka í yfirlit
10. mars 2014
Leyndardómar Suðurlands - tveir ráðherrar opna hátíðina 28. mars

Framundan er umfangsmikið kynningarátak á Suðurlandi þar sem ferðaþjónustufyrirtækjum, matvælaframleiðendum, félögum, fyrirtækjum, stofnunum, einstaklingum og öllum öðrum áhugasömum er boðið að taka þátt í. Átakið kallast „Leyndadómar Suðurlands“ og mun standa yfir frá föstudeginum 28. mars til sunnudagsins 6. apríl nk. Það eru Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) og Markaðsstofa Suðurlands, sem standa fyrir verkefninu.
Ráðherrar opna
Ráðherrar Suðurkjördæmis, þau Ragnheiður Elín Árnadóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson munu opna leyndardómana formlega föstudaginn 28. mars kl. 14:00 við Litlu kaffistofuna. Frá þeim tíma verður öllum landsmönnum og erlendum ferðamönnum, sem staddir eru á landinu boðið að koma á Suðurland og taka þátt í fjölbreyttum viðburðum þessa 10 daga sem átakið stendur yfir.
Frítt í Strætó
Rúsínan í pylsuendanum á Leyndardómum Suðurlands er frítt í Strætó frá Reykjavík á Suðurland og á öllum leiðum inna svæðisins. Strætó er með mjög öflugt leiðakerfi á Suðurlandi þar sem hægt er að komast til allra átta án þess að borga krónu á meðan leyndardómarnir standa yfir.
Sudurland.is
Áður en Leyndardómar Suðurlands skella á verður búið að opna nýja og glæsilega heimasíðu, www.sudurland.is þar sem allir viðburðir leyndardómanna verða kynntir. Þá verður gefið út sérstakt viðburðardagatal sem verður sent inn á öll heimili á Suðurlandi með upplýsingum um helstu viðburð.
Dæmi um atburði
Markmiðið með átakinu er að kynna sem mest af Suðurlandi og fá sem flesta gesti til að heimsækja Suðurland. Megininntakið í átakinu er Matur – Saga – Menning. Hér er því kærkomið tækifæri til að lengja ferðamannatímabilið og koma öllum leyndardómum Suðurlands á framfæri. Dæmi um atburði þessa daga gætu verið tilboð á veitingastöðum, tveir fyrir einn í gistingu, ókeypis í sund, listsýningar, tónleikar, skemmtanir, tilboð á sunnlenskum vörum, lengdur opnunartími verslana , tilboð í afþreyingu, opin hús víða í fjórðungunum og fleira og fleira. Verkefnið er með sérstaka fésbókarsíðu, „Leyndardómar Suðurlands“ þar sem upplýsingar um verkefnið koma reglulega inn.
Magnús Hlynur Hreiðarsson, kynningarstjóri Leyndardóma Suðurlands - mhh@sudurland.is -
Fleiri fréttir

17. júlí 2026
Sveitarfélög um allt land krefjast svara um framtíð heilbrigðiseftirlitsins
Lesa nánar

13. júlí 2026
Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó
Lesa nánar

8. júlí 2026
FabLab-smiðjur á Suðurlandi fá tvær milljónir króna til að efla stafræna hæfni ungmenna
Lesa nánar

6. júlí 2026
Úr Hvolnum í Tjarnarbíó: VOX Rangárþing sýnir ÁST í höfuðborginni
Lesa nánar