Til baka í yfirlit
25. ágúst 2022
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir eftir umsóknum

Opið er fyrir umsóknir um styrk úr Framkvæmdarsjóði ferðamannastaða vegna framkvæmda á árinu 2023.
Hvað er styrkæft?
Framkvæmdarsjóður ferðamannastaða fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila.
Sjóðnum er heimilt að fjármagna framkvæmdir sem snúa að:
- Öryggi ferðamanna
- Náttúruvernd og uppbyggingu
- Viðhaldi og verndun mannvirkja og náttúru
- Fjármögnun undirbúnings- og hönnunarvinnu sem er nauðsynleg vegna áðurgreinda framkvæmda
Sjóðnum er m.a. ekki heimilt að:
- Bera rekstrarkostnað af mannvirkjum og vegna náttúruverndarsvæða eða annarra ferðamannastaða
- fjármagna framkvæmdir sem eru á landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum
- Veita fjármagn til verkefna sem þegar er lokið
Umsóknarferlið
Farið er ítarlega yfir umsóknarferlið og þau skilyrði sem þarf að uppfylla á umsóknarsíðu Ferðamálastofu. Sjálf umsóknarforið er á island.is. M.a. kemur fram að umsóknir geta fallið í annan af eftirfarandi flokkum eftir eðli verkefnis:
- Þjónusta/aðstaða á ferðamannastað eða ferðamannaleið
- Úrbætur vegna náttúruverndar og/eða öryggis á ferðamannastað eða ferðamannaleið
Mikilvægt er að vanda umsóknir. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér þau lög sem gilda um Framkvæmdarsjóð ferðamannastaða nr. 75/2011 og reglugerð nr. 782/2017 og vanda umsóknir sínar. Jafnframt er umsækjendum bent á að kynna sér gæðaviðmið sjóðsins sbr. gæðamatsblað ásamt ýmsum frekari upplýsingum sem finna má á umsóknarsíðu.
Umsóknarfrestur er til 5. október kl. 13:00.
Ráðgjafar SASS eru tilbúnir að aðstoða við gerð umsókna, upplýsingar um ráðgjafa má finna hér.

Dyrhólaey
Fleiri fréttir

17. júlí 2026
Sveitarfélög um allt land krefjast svara um framtíð heilbrigðiseftirlitsins
Lesa nánar

13. júlí 2026
Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó
Lesa nánar

8. júlí 2026
FabLab-smiðjur á Suðurlandi fá tvær milljónir króna til að efla stafræna hæfni ungmenna
Lesa nánar

6. júlí 2026
Úr Hvolnum í Tjarnarbíó: VOX Rangárþing sýnir ÁST í höfuðborginni
Lesa nánar