EN

Til baka í yfirlit

12. október 2011

Yfirlýsing vegna réttargeðdeildar að Sogni

Yfirlýsing vegna réttargeðdeildar að Sogni


Yfirlýsing Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga mótmæla harðlega þeirri  ákvörðun forráðamanna Landspítalans háskólasjúkrahúss að leggja niður réttargeðdeildina á Sogni.  Ákvörðunin  er illskiljanleg.því ekki hefur verið sýnt fram á hagræði þess að flytja starfsemina á höfuðborgarsvæðið og sparnaður  i meira lagi vafasamur auk þess sem að fyrir liggur að leggja þarf í stofnkostnað  til að tryggja deildinni þá umgjörð sem þarf á nýjum stað.    Samtökin mótmæla tilflutningi starfa af landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins sem er í hróplegri mótsögn við yfirlýsta byggðastefnu stjórnvalda. Á réttargeðdeildinni starfa nú um 30 starfsmenn með búsetu i Árborg, Hveragerði , Ölfusi og Flóahreppi og því um verulegt högg að ræða fyrir atvinnulíf þess svæðis.  

 

 

Yfirlýsing vegna réttargeðdeildar að Sogni