Samtök sunnlenskra sveitarfélaga

Austurvegi 56 – 800 Selfoss
Sími: 480-8200
Netfang: sass@sass.is
Kt. 480775-0159

EN

Leitarniðurstöður

Til baka í yfirlit

27. ágúst 2026

Ný Byggðakort og sveigjanlegri nemakort Strætó

Vegagerðin og Strætó hafa hleypt af stokkunum nýjum áskriftarkortum. Um er að ræða svokölluð Byggðakort fyrir landsbyggðarstrætó, auk þess sem fyrirkomulag nemakorta hefur verið gert mun sveigjanlegra og hagkvæmara.

Byggðakort

Nýju Byggðakortin eru sérstaklega hugsuð fyrir þá sem ferðast reglulega á milli tveggja þéttbýliskjarna innan landshlutans án viðkomu á höfuðborgarsvæðinu. Þær akstursleiðir sem nú eru í boði á Suðurlandi voru valdar út frá því hvar ákallið hefur verið mest að undanförnu.

Akstursleiðirnar sem heyra undir nýju Byggðakortin á Suðurlandi eru:

  • Selfoss – Hveragerði
  • Selfoss – Þorlákshöfn
  • Selfoss – Hella – Hvolsvöllur

Fram kemur hjá Vegagerðinni að komi upp óskir um fleiri akstursleiðir verði það tekið til skoðunar. Byggðakortin eru einnig í boði á völdum leiðum á Suðurnesjum og Vesturlandi. Sömu aldursflokkar og afsláttarkjör gilda fyrir nýju kortin og hin hefðbundnu Landshlutakort sem áfram verða í sölu á óbreyttu verði.

Meiri sveigjanleiki fyrir námsmenn

Samhliða nýju Byggðakortunum hefur fyrirkomulagi á sölu nemakorta verið breytt til hins betra. Nemendur geta nú sérsniðið áskriftina að sínum þörfum og valið það kort sem hentar þeim best, annaðhvort Landshlutakort eða Byggðakort, og fá alltaf 50% afslátt.

Áður gátu nemendur aðeins keypt kort sem gilti fyrir ákveðinn landshluta í sex mánuði í senn. Þetta nýja og sveigjanlegra fyrirkomulag auðveldar námsmönnum að sækja menntun sína og velja áskrift nákvæmlega út frá þeim leiðum sem þeir nota mest í sínu daglega lífi.

Nánari upplýsingar og verðskrá fyrir öll áskriftarkort landsbyggðarstrætó má finna á sölusíðu Strætó (straeto.is/verslun/landsbyggdin).

Fleiri fréttir

26. ágúst 2026

Styrkjagátt SASS opnuð: Allir sjóðir á einum stað

Lesa nánar

26. ágúst 2026

Sameiginlegur vinnufundur byggðaþróunarfulltrúa Suðurlands

Lesa nánar

24. ágúst 2026

Ný stjórn og starfsfólk SASS stilla saman strengi

Lesa nánar

20. ágúst 2026

Beint frá býli dagurinn haldinn hátíðlegur sunnudaginn 23. ágúst

Lesa nánar