Til baka í yfirlit
23. september 2009
Menningarveisla í Vík 2.-4. október 2009
Menningarveislan Regnboginn, verður haldin í Vík í Mýrdal dagana 2.-4. október nk. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá listviðburða og er aðgangur ókeypis. Meðal atriða verða leiklist, tónlist og upplestur. Bítlalögin í léttri kammersveiflu, Stefán Hilmarsson og Eyjólfur Kristjánsson með ljúfa tóna.
Poppveisla hljómsveita úr Mýrdælnum, kórakeppni, söngvarakeppni og fjölbreytt aðkoma nemenda leikskóla, grunnskóla og tónskóla. Regbogamarkaður verður í Leikskálum, með myndlist, ljósmyndum og handverki auk þess sem Jón Adolf Steinólfsson tréútskurðameistari verður með sýningu. Opið hús verður víða í þorpinu.

Fleiri fréttir

29. júlí 2026
Eyjagöng: Hafbotnsmælingum lokið og borun gengur vel
Lesa nánar

17. júlí 2026
Sveitarfélög um allt land krefjast svara um framtíð heilbrigðiseftirlitsins
Lesa nánar

13. júlí 2026
Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó
Lesa nánar

8. júlí 2026
FabLab-smiðjur á Suðurlandi fá tvær milljónir króna til að efla stafræna hæfni ungmenna
Lesa nánar