Samtök sunnlenskra sveitarfélaga

Austurvegi 56 – 800 Selfoss
Sími: 480-8200
Netfang: sass@sass.is
Kt. 480775-0159

Edit PageLogout
EN

Leitarniðurstöður

Til baka í yfirlit

3. september 2026

Flestar umsóknir frá Suðurlandi í Startup Landið

Alls bárust 47 spennandi umsóknir í viðskiptahraðalinn Startup Landið, en stærsti hluti umsækjenda kemur af Suðurlandi. Hraðallinn hefst formlega þann 24. september næstkomandi og er vettvangur fyrir nýsköpunarverkefni og frumkvöðla á landsbyggðinni. Fjöldi heildarumsókna endurspeglar vel þá eftirspurn eftir stuðningi og faglegum vettvangi fyrir frumkvöðla um land allt.

Gróska í nýsköpun á Suðurlandi

Fjöldi og landfræðileg dreifing umsóknanna sýnir glöggt að mikil gróska er í nýsköpun um allt land, en sérstaklega er ánægjulegt að sjá hversu sterkt Suðurlandið kemur inn. Flestar umsóknirnar komu frá Suðurlandi, eða 28% af heildarfjölda, sem undirstrikar þann mikla kraft í nýsköpun og atvinnulífi sem býr í landshlutanum okkar. Umsóknirnar gefa góða mynd af þeim fjölbreyttu og spennandi hugmyndum sem verið er að þróa á landsbyggðinni um þessar mundir.

T.v. má sjá tölfræði umsókna en greinilegt að áhuginn er mikill í öllum landshlutum.

T.h. frá fræðslulotu á síðasta ári með frumkvöðlum sem voru valdir til leiks

Sjö vikna ferli sem lýkur á Selfossi

Startup Landið stendur yfir í sjö vikur. Á þeim tíma fá þátttakendur ómetanlegan aðgang að reynslumiklum leiðbeinendum, markvissri fræðslu og öflugu tengslaneti sem hjálpar teymunum að taka næstu skref í sinni viðskiptaþróun. Fyrir okkur Sunnlendinga er það sérstakt fagnaðarefni að hraðlinum mun ljúka með glæsilegum lokaviðburði á Selfossi fimmtudaginn 6. nóvember. Þar munu þátttakendur stíga á svið, kynna verkefni sín og sýna þann árangur sem náðst hefur.

Valnefnd Startup Landsins fer nú yfir allar 47 umsóknirnar og velur þau verkefni sem boðin verður þátttaka. Valin teymi verða kynnt formlega í næstu viku og verður spennandi að sjá hvaða frumkvöðlar munu mæta til leiks á Selfossi í nóvember.

Fleiri fréttir

7. október 2026

SASS sendir inn umsögn vegna Náttúrupassa: Aðför að sunnlenskri ferðaþjónustu

Lesa nánar

5. október 2026

Landsvirkjun styður við Uppsprettu Suðurlands

Lesa nánar

30. september 2026

Við erum einfaldlega sterkari saman- Hugleiðingar framkvæmdastjóra

Lesa nánar

28. september 2026

Suðurland í fararbroddi í uppbyggingu íbúða: Ölfus trónir á toppnum á landsvísu

Lesa nánar