Til baka í yfirlit
18. nóvember 2022
Fjárfestahátíð á Siglufirði - Opið fyrir umsóknir

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga vilja vekja athygli á fjárfestahátíð sem haldin verður á Siglufirði dagana 29. til 31. mars 2023. Leitað er eftir verkefnum sem eru tilbúin til fjármögnunar. Að þessu sinni verður opið fyrir umsóknir allstaðar að af landsbyggðinni. Hvetja samtökin því frumkvöðla á Suðurlandi til að sækja um ef þau telja sig eiga erindi inn á þennan vettvang.
Verkefnunum verður skipt í tvo flokka:
- Sprotafyrirtæki: Verkefni á fyrsta stigi fjármögnunar sem leita eftir fjármögnun á bilinu 20 m.kr. til 100 m.kr.
- Vaxtarfyrirtæki: Verkefni sem hafa fengið fjármögnun, eða vaxið af eigin tekjum, en þurfa aukið fjármagn til að stækka enn frekar og leita eftir fjármögnun upp á 100 m.kr. eða meira.
Sótt er um hér á vefsvæði Norðanáttar og er öllum frjálst að senda inn umsókn sem telja verkefni sín falla undir áherslur Norðanáttar; matur, orka, vatn. Opið er fyrir umsóknir til 15. janúar nk.
Ráðgjafar á vegum SASS eru til staðar og leiðbeina við gerð umsókna.
Viltu hafa samband við ráðgjafa? Smelltu hér.

Fleiri fréttir

24. nóvember 2026
Starfsfólk SASS sótti nýja þekkingu á norræna byggðaþróunarráðstefnu í Árósum
Lesa nánar

19. nóvember 2026
Hulduheimar fyrstir leikskóla í Árborg til að hljóta ART-vottun
Lesa nánar

18. nóvember 2026
„Hættum að tala og byrjum að gera“ – Náttúruverndarstofnun blómstrar á landsbyggðinni
Lesa nánar

16. nóvember 2026
Söguslóðir Suðurlands mótast: Hvaða sögur búa á þínu svæði?
Lesa nánar