fbpx

 

Opið er fyrir umsóknir um styrk úr Framkvæmdarsjóði ferðamannastaða vegna framkvæmda á árinu 2023. 

Hvað er styrkæft?

Framkvæmdarsjóður ferðamannastaða fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila. 

Sjóðnum er heimilt að fjármagna framkvæmdir sem snúa að:

  • Öryggi ferðamanna
  • Náttúruvernd og uppbyggingu
  • Viðhaldi og verndun mannvirkja og náttúru
  • Fjármögnun undirbúnings- og hönnunarvinnu sem er nauðsynleg vegna áðurgreinda framkvæmda

 

Sjóðnum er m.a. ekki heimilt að:

  • Bera rekstrarkostnað af mannvirkjum og vegna náttúruverndarsvæða eða annarra ferðamannastaða
  • fjármagna framkvæmdir sem eru á landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum
  • Veita fjármagn til verkefna sem þegar er lokið

 

Umsóknarferlið

Farið er ítarlega yfir umsóknarferlið og þau skilyrði sem þarf að uppfylla á umsóknarsíðu Ferðamálastofu. Sjálf umsóknarforið er á island.is. M.a. kemur fram að umsóknir geta fallið í annan af eftirfarandi flokkum eftir eðli verkefnis:

  • Þjónusta/aðstaða á ferðamannastað eða ferðamannaleið
  • Úrbætur vegna náttúruverndar og/eða öryggis á ferðamannastað eða ferðamannaleið

 

Mikilvægt er að vanda umsóknir. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér þau lög sem gilda um Framkvæmdarsjóð ferðamannastaða nr. 75/2011 og reglugerð nr. 782/2017 og vanda umsóknir sínar. Jafnframt er umsækjendum bent á að kynna sér gæðaviðmið sjóðsins sbr. gæðamatsblað ásamt ýmsum frekari upplýsingum sem finna má á umsóknarsíðu. 

Umsóknarfrestur er til 5. október kl. 13:00. 

Ráðgjafar SASS eru tilbúnir að aðstoða við gerð umsókna, upplýsingar um ráðgjafa má finna hér.

 

Dyrhólaey