IS

Uppbyggingarsjóður Suðurlands

Hefur þú frábæra hugmynd sem getur eflt atvinnulíf, nýsköpun og/eða menningu á Suðurlandi? Uppbyggingarsjóður Suðurlands er samkeppnissjóður sem hefur það hlutverk að styðja við frumkvæði, nýsköpun og framsækin verkefni sem falla að Sóknaráætlun landshlutans.

Opnað verður fyrir umsóknir 16. september og lýkur umsóknarfresti 21. október kl. 14:00.


Leiðin frá hugmynd að framkvæmd er í fjórum einföldum skrefum:

1. Undirbúningur og gjaldfrjáls ráðgjöf

Ekki byrja á núllpunkti! Umsækjendur eru eindregið hvattir til að nýta sér gjaldfrjálsa ráðgjöf byggðaþróunarfulltrúa SASS áður en umsókn er send inn. Byggðaþróunarfulltrúar okkar eru staðsettir um allt Suðurland og geta aðstoðað þig við að skerpa á hugmyndinni, lesa yfir drög og gefa góð ráð um umsóknarskrifin sjálf.

2. Sendu inn styrkumsókn

Þegar verkefnið er vel mótað er sótt um í gegnum einfalt og rafrænt umsóknarform. Einstök styrkveiting úr sjóðnum getur að hámarki verið 2,5 milljónir króna. Áður en þú sendir inn er lykilatriði að kynna sér úthlutunarreglur sjóðsins vel.

3. Faglegt matsferli

Uppbyggingarsjóður er samkeppnissjóður þar sem allar umsóknir eru metnar faglega út frá fyrir fram ákveðnum matsþáttum sem finna má í úthlutunarreglunum. Hlutfall umsókna sem hljóta styrk er að jafnaði um 50%. Vönduð umsókn og skýr markmið auka því verulega líkurnar á að þitt verkefni verði fyrir valinu.

4. Samningur og framkvæmd

Þegar úthlutun liggur fyrir er gerður formlegur samningur milli SASS og styrkþega um þau verkefni sem hlutu brautargengi. Eftir það er ekkert annað að gera en að bretta upp ermar og hefjast handa!

Nánar um Uppbyggingarsjóð Suðurlands