IS

Ráðgjöf byggðaþróunarfulltrúa: Við hjálpum þér að stíga næsta skref

Ertu með viðskiptahugmynd í maganum, spennandi menningarverkefni eða fyrirtæki sem þarf aðstoð við að vaxa? Byggðaþróunarfulltrúar SASS eru staðsettir um allt Suðurland og eru til taks til að hlusta, leiðbeina og styðja við bakið á þér. Við þekkjum landshlutann, tengslanetið og styrkjaumhverfið.

Hvað getum við gert fyrir þig?

Við veitum persónulega og faglega ráðgjöf sem er sérsniðin að þínum þörfum. Helstu áherslusvið okkar eru:

  • Nýsköpun og frumkvöðlastarf: Við hjálpum þér að koma hugmynd í framkvæmd, hvort sem það er að móta vöru, finna rétta farveginn eða skoða fjármögnunarmöguleika.
  • Atvinnuþróun og rekstur: Aðstoð við gerð viðskiptaáætlana, stefnumótun og vöxt fyrirtækja.
  • Menningarmál: Ráðgjöf við menningartengd verkefni, viðburði og umsóknir í sjóði.

Gjaldfrjáls þjónusta

Til að hvetja til frumkvæðis og sköpunar á svæðinu niðurgreiðir SASS þessa ráðgjöf og er hún gjaldfrjáls upp að ákveðnu marki á hverju almanaksári:

  • Allt að 7 klukkustundir fyrir einstaklinga, frumkvöðla og fyrirtæki.
  • Allt að 20 klukkustundir fyrir stofnanir.

Hafðu samband Bókaðu tíma hjá byggðaþróunarfulltrúa á þínu svæði hér að neðan, eða sendu okkur línu ef þú vilt byrja á stuttu spjalli. Við tökum vel á móti þér!

Vestmannaeyjar

Hörður Baldvinsson

Byggðaþróunarfulltrúi

Vestmannaeyjar

Location: ÞekkingaseturEmail: hbald@setur.isPhone: 841-7710

Selfoss

Helga Kristín Sæbjörnsdóttir

Byggðaþróunarfulltrúi

Neðri hluti Árnessýslu

Location: Háskólafélag SuðurlandsEmail: helga@hfsu.isPhone: 560-2040

Selfoss

Margrét Pollý Hansen

Byggðaþróunarfulltrúi

Neðri hluti Árnessýslu

Location: Háskólafélag SuðurlandsEmail: polly@hfsu.isPhone: 560-2040

Hvolsvöllur/Hella

Harpa Jónsdóttir

Byggðaþróunarfulltrúi

Rangárþing

Location: Skrifstofa Rangárþings eystra - RáðhúsEmail: harpa@hvolsvollur.isPhone: 488-4200

Reykholt

Rakel Theódórsdóttir

Byggðaþróunarfulltrúi

Uppsveitir Árnessýslu

Location: ReykholtEmail: rakel@sveitir.isPhone: 664-3122

Skaftárhreppur

Unnur Einarsdóttir Blandon

Byggðaþróunarfulltrúi

Skaftárhreppur

Location: Skrifstofa sveitarfélagsinsEmail: unnurb@klaustur.isPhone: 487-4645

Höfn

Hugrún Harpa Reynisdóttir

Byggðaþróunarfulltrúi

Hornafjörður

Location: NýheimarEmail: hugrunharpa@nyheimar.isPhone: 470-8088

Höfn

Eva Bjarnadóttir

Byggðaþróunarfulltrúi

Hornafjörður

Location: NýheimarEmail: eva@nyheimar.isPhone: 470-8088