Back to overview
3. september 2014
Uppskeruhátíð og Uppsveitahringurinn á Flúðum

Laugardaginn 6. september verður árviss uppskeruhátíð haldin í Hrunamannahreppi.
Fjölbreytt dagskrá verður á Flúðum og nágrenni, markaður í félagsheimilinu með uppskeru og ýmsan varning beint frá býli,
handverk, opin hús, söfn, sýningar, golfmót og tilboð hjá ferðaþjónustuaðilum.
Íþróttaviðburðurinn „Uppsveitahringurinn" verður haldinn sama dag í þriðja sinn þar sem hlaupið og hjólað verður um uppsveitir Árnessýslu.
Vegalengdirnar eru eins og fyrri ár
• 10 km hlaup
• 46 km hjólreiðar ræstir út tveir hópar, skemmtihjólreiðahópur og keppnishjólreiðahópur.
• 10 km hjólreiðar
Skráning á www.hlaup.is
Uppsveitahringur 2014 á Facebook
Nánari upplýsingar verðaá síðum sveitarfélaganna og www.sveitir.is



More articles

26. ágúst 2026
Styrkjagátt SASS opnuð: Allir sjóðir á einum stað
Read more

26. ágúst 2026
Sameiginlegur vinnufundur byggðaþróunarfulltrúa Suðurlands
Read more

24. ágúst 2026
Ný stjórn og starfsfólk SASS stilla saman strengi
Read more

20. ágúst 2026
Beint frá býli dagurinn haldinn hátíðlegur sunnudaginn 23. ágúst
Read more