Back to overview
24. ágúst 2026
Ný stjórn og starfsfólk SASS stilla saman strengi

Ný stjórn og starfsfólk Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga komu saman til vinnufundar á Sveitasetrinu Brú í Grímsnesi 20. ágúst sl. Markmið fundarins var að stilla saman strengi fyrir komandi starfsár, fara yfir stefnumótun landshlutans og undirbúa stór verkefni á borð við nýjan sunnlenskan sveitarstjórnarskóla og komandi ársþing.
Fundurinn markaði formlegt upphaf að samstarfi nýrrar stjórnar og starfsfólks samtakanna. Farið var ítarlega yfir tilgang og hlutverk landshlutasamtakanna sem sameiginlegs vettvangs sveitarfélaganna 15 á Suðurlandi. Þar gegna byggðaþróunarfulltrúar mikilvægu hlutverki í að tengja stefnumótun SASS við atvinnulíf og samfélag heima í héraði. Jafnframt var farið yfir samstarfsverkefni á borð við Sorpstöð Suðurlands, Eignarhaldsfélag Suðurlands og hið mikilvæga forvarnar- og meðferðarúrræði ART teymisins.

Stjórn og starfmenn hlýða á framkvæmdastjóra SASS
Sóknaráætlun í forgrunni
Eitt helsta stjórntæki samtakanna, Sóknaráætlun Suðurlands fyrir árin 2025–2029, var í brennidepli á fundinum. Áætlunin er sértæk byggðaáætlun landshlutans og mikilvægur leiðarvísir að sjálfbærri þróun og uppbyggingu um allt Suðurland. Henni er ætlað að efla samkeppnishæfni, bæta lífsgæði og tryggja blómlegt og samheldið samfélag fyrir alla Sunnlendinga. Sóknaráætlunin byggir á víðtæku samráði við íbúa, atvinnulíf og kjörna fulltrúa og skiptist í fjórar meginstoðir: atvinnu og nýsköpun, samfélag, umhverfi og innviði.
Á fundinum var lögð áhersla á að áætlunin væri lifandi stýritæki sem knýr áfram framþróun í landshlutanum, meðal annars í gegnum Uppbyggingarsjóð Suðurlands og öflug áhersluverkefni.

Lína Björg verkefnastjóri byggðamála fer yfir mikilvægi Sóknaráætlunar Suðurlands
Sveitarstjórnarskólinn og Ársþing SASS
Stór verkefni eru fram undan og var tímanum vel varið í að ræða framkvæmd þeirra. Kynnt voru drög að Sunnlenska sveitarstjórnarskólanum, sem er nýtt fræðslu- og kynningarátak ætlað nýkjörnum sveitarstjórnarfulltrúum á Suðurlandi. Verkefnið felur meðal annars í sér heimsóknir SASS í öll sveitarfélög landshlutans.
Þá var lagt á ráðin um undirbúning fyrir Ársþing SASS sem haldið verður 29.-30. október næstkomandi. Farið var yfir drög að dagskrá, nefndarvinnu, kynningar á áhersluverkefnum og fleira sem viðkemur skipulagningu þingsins.
Vinnufundurinn á Sveitasetrinu Brú þótti einkar árangursríkur og ljóst að mikill hugur er í nýrri stjórn og starfsfólki að vinna ötullega að framgangi og hagsmunum Suðurlands á nýju kjörtímabili.

Elísabet Björney umhverfissérfræðingur SASS fer yfir verkefnin framundan
More articles

20. ágúst 2026
Beint frá býli dagurinn haldinn hátíðlegur sunnudaginn 23. ágúst
Read more

19. ágúst 2026
Opnað fyrir styrki til pólsk-íslenskra samstarfsverkefna
Read more

17. ágúst 2026
Ríkisstjórnin á Höfn: Árangur í innviðamálum en kallað á frekari aðgerðir
Read more

29. júlí 2026
Eyjagöng: Hafbotnsmælingum lokið og borun gengur vel
Read more