Back to overview
7. október 2026
SASS sendir inn umsögn vegna Náttúrupassa: Aðför að sunnlenskri ferðaþjónustu

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga mótmæla harðlega hugmyndum stjórnvalda um nýtt náttúru- og innviðagjald sem byggir á því að skattleggja eingöngu ferðamenn sem heimsækja þrjá vinsælustu ferðamannastaði Suðurlands. SASS telur fyrirkomulagið fela í sér óásættanlega mismunun og alvarlega aðför að sunnlenskri ferðaþjónustu og verðmætasköpun.
Atvinnuvegaráðuneytið hefur kynnt drög að frumvarpi um nýtt náttúru- og innviðagjald, svokallaðan náttúrupassa, í Samráðsgátt stjórnvalda. Samkvæmt drögunum er gert ráð fyrir að afla sex til sjö milljarða króna árlega með því að innheimta gjald af erlendum ferðamönnum á þremur tilteknum stöðum: Geysi, Gullfossi og Þingvöllum – sem allir eru á Suðurlandi.
SASS hefur skilað inn umsögn við frumvarpið þar sem þessari aðferðafræði er mótmælt. Samtökin benda á að með þessu sé eitt landsvæði gert að sérstökum gjaldstofni ríkissjóðs þótt tekjunum sé ætlað að standa undir verkefnum ríkisins vegna ferðaþjónustu um land allt.
Mismunun sem breytir ferðamynstri
SASS varar við því að fyrirhugað fyrirkomulag geti haft mjög neikvæð áhrif á ferðamynstur. Ef ferðamenn verða rukkaðir um sérstakt gjald á Suðurlandi sem þeir þurfa ekki að greiða annars staðar á landinu, skapast hætta á að fólk fari að sneiða hjá sunnlenskum náttúruperlum og fyrirtækjum.
Í umsögn sinni hvetur SASS stjórnvöld til að hætta við þessar áætlanir og horfa frekar til almennrar gjaldtöku á jafnræðisgrunni við komu erlendra ferðamanna til landsins. Verði náttúrupassi ofan á verður hann að gilda fyrir landið allt til að tryggja sanngirni.
Hér að neðan má lesa umsögn SASS í heild sinni:
Umsögn um: Mál nr. S-180/2026 - Frumvarp til laga um náttúru- og innviðagjald.
Sendandi: Samtök sunnlenskra sveitarfélaga / SASS
Dagsetning: 5. október 2026
Fyrirhuguð gjaldtaka og áhrif á Suðurland
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga / SASS mótmælir harðlega þeirri aðferðafræði sem lögð er til við innheimtu fyrirhugaðs náttúru- og innviðagjalds. Samkvæmt fyrirliggjandi áformum er gert ráð fyrir að afla 6–7 milljarða króna árlega með gjaldtöku af erlendum ferðamönnum sem heimsækja aðeins þrjá staði, Geysi, Gullfoss og Þingvelli, sem allir eru staðsettir í Uppsveitum Árnessýslu og tilheyra helsta ferðamannasvæði landsins.
Að mati SASS felur þessi útfærsla í sér óásættanlega aðför að ferðaþjónustu á Suðurlandi. Með henni er eitt landsvæði gert að sérstökum gjaldstofni ríkissjóðs, þótt tekjunum sé ætlað að standa undir verkefnum ríkisins vegna ferðaþjónustu um land allt, meðal annars markaðssetningu, rannsóknum, náttúruvernd og annarri uppbyggingu.
Ferðamenn sem kjósa að heimsækja Suðurland verða þannig látnir bera sérstaka gjaldtöku sem ferðamenn sem ferðast um önnur landsvæði þurfa ekki að greiða með sama hætti. Slík mismunun getur haft bein áhrif á ferðamynstur, samkeppnisstöðu fyrirtækja og verðmætasköpun á stærsta og mikilvægasta ferðamannasvæði landsins.
Jafnræði og landsbundinn grundvöllur
SASS telur þessa nálgun jafnframt illa samræmast yfirlýstum markmiðum stjórnvalda um uppbyggingu ferðaþjónustu um land allt, dreifingu ferðamanna, réttláta gjaldtöku og styrkingu dreifðra byggða. Ef tekjuöfluninni er ætlað að fjármagna sameiginleg verkefni ferðaþjónustunnar á landsvísu verður gjaldtakan sjálf einnig að byggjast á landsbundnum og jafnræðislegum grunni.
Almenn gjaldtaka við komuna til landsins
Samtökin telja því mun eðlilegra að sérstakt gjald vegna ferðamanna verði innheimt með almennum hætti við komu erlendra ferðamanna til landsins. Með þeirri leið tækju erlendir ferðamenn jafnan þátt í kostnaði samfélagsins vegna ferðaþjónustu óháð því hvaða landshluta þeir kjósa að heimsækja. Gjaldtakan hefði þá ekki áhrif á val ferðamanna á áfangastöðum innan landsins og skapaði ekki hvata til að sneiða hjá tilteknum landshlutum eða náttúruperlum vegna sérstakrar gjaldtöku. Slík leið væri að mati SASS bæði einfaldari, gagnsærri og sanngjarnari og fæli ekki í sér að eitt landsvæði bæri meginþunga almennrar tekjuöflunar ríkisins vegna ferðaþjónustu.
Landsbundinn náttúrupassi
Verði engu að síður ákveðið að byggja gjaldtökuna á náttúrupassa telur SASS grundvallaratriði að um raunverulegan landsbundinn náttúrupassa verði að ræða. Einn passi eigi þá að gilda á ferðamannastöðum í eigu eða umsjón ríkisins um allt land en ekki eingöngu á þremur stöðum í Uppsveitum Árnessýslu.
Slíkur náttúrupassi myndi dreifa gjaldtökunni, tryggja jafnræði milli landshluta og geta jafnframt skapað jákvæðan hvata fyrir ferðamenn til að heimsækja fleiri staði um landið. Það samræmdist mun betur markmiðum stjórnvalda um dreifingu ferðamanna og verðmætasköpun ferðaþjónustunnar um allt Ísland.
SASS leggur því áherslu á eftirfarandi:
- Fallið verði frá fyrirliggjandi aðferðafræði, þar sem 6–7 milljarða króna árleg tekjuöflun ríkisins er byggð á heimsóknum ferðamanna á aðeins þrjá staði á Suðurlandi.
- Fyrsti valkostur verði almenn og jafnræðisleg gjaldtaka við komu erlendra ferðamanna til landsins, enda sé um að ræða tekjuöflun sem ætlað er að standa undir sameiginlegum verkefnum ríkisins vegna ferðaþjónustu.
- Verði náttúrupassi fyrir valinu verði hann einn og landsbundinn og gildi á ferðamannastöðum í eigu eða umsjón ríkisins um allt land.
Niðurstaða
SASS telur óásættanlegt að almenn tekjuöflun ríkisins vegna ferðaþjónustu sé byggð upp með þeim hætti að ferðamenn sem heimsækja helsta ferðamannasvæði landsins beri meginþunga gjaldtökunnar.
Ferðaþjónusta er þjóðhagslega mikilvæg atvinnugrein og sameiginlegt hagsmunamál landsins alls. Gjaldtaka vegna hennar á því að vera almenn, gagnsæ og jafnræðisleg, en ekki sérstök skattlagning á ferðamenn vegna þess eins að þeir kjósa að heimsækja Suðurland.
Fyrir hönd Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga / SASS,
Ingunn Jónsdóttir framkvæmdastjóri.
More articles

5. október 2026
Landsvirkjun styður við Uppsprettu Suðurlands
Read more

30. september 2026
Við erum einfaldlega sterkari saman- Hugleiðingar framkvæmdastjóra
Read more

28. september 2026
Suðurland í fararbroddi í uppbyggingu íbúða: Ölfus trónir á toppnum á landsvísu
Read more

18. september 2026
Breytingar á starfsemi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands um næstu áramót
Read more