IS

Back to overview

19. nóvember 2026

Hulduheimar fyrstir leikskóla í Árborg til að hljóta ART-vottun

Leikskólinn Hulduheimar á Selfossi hefur hlotið ART-vottun frá ART-teymi Suðurlands, fyrstur leikskóla í Sveitarfélaginu Árborg. Vottunin er viðurkenning á metnaðarfullu fagstarfi í leikskólanum, þar sem unnið hefur verið markvisst með ART-aðferðina í um 16 ár til að efla félagsfærni, sjálfstjórn og siðferðisþroska barna.

Tímamótin voru tvöföld þegar fulltrúar ART-teymisins afhentu viðurkenninguna, enda fagnaði leikskólinn um leið 20 ára afmæli sínu.

Nánar má lesa um vottunina og starfið í Hulduheimum í umfjöllun á vef DFS

Við afhendingu viðurkenningarinnar.

F.v. Selma Harðardóttir ART ráðgjafi, Kristrún Hafliðadóttir leikskólastjóri Hulduheima, Guðrún Herborg Hergeirsdóttir verkefnastjóri ART teymis og Hildur Bjargmundsdóttir ART ráðgjafi