Back to overview
10. nóvember 2026
Fyrsta Nýsköpunarstefna Suðurlands kynnt á Uppsprettu: Mikill kraftur í sunnlensku atvinnulífi

Nýsköpunarhátíðin Uppspretta Suðurlands fór fram með pompi og prakt á Selfossi þar sem frumkvöðlar, fyrirtæki, stjórnvöld, sveitarfélög og stoðkerfi komu saman til að ræða framtíð verðmætasköpunar í landshlutanum. Hápunktur hátíðarinnar var formleg kynning á fyrstu sameiginlegu Nýsköpunarstefnu Suðurlands, sem unnin hefur verið af Háskólafélagi Suðurlands sem áhersluverkefni á vegum Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga. Hátíðin sýndi glöggt þann mikla drifkraft sem einkennir sunnlenskt atvinnulíf.
Ingunn Jónsdóttir framkvæmdastjóri SASS setti hátíðina og lagði áherslu á mikilvægi þess að frumkvöðlar, fyrirtæki og stoðkerfið vinni þétt saman. Logi Már Einarsson menningar- og nýsköpunarráðherra tók í sama streng í ávarpi sínu og fagnaði stefnunni sérstaklega. Hann benti á að hagsæld á Íslandi verði alltaf að skoða út frá öllu landinu og að efla þurfi þátttöku landsbyggðarinnar í opinberum stuðningsúrræðum til nýsköpunar.

Ingunn Jónsdóttir framkvæmdastjóri SASS setur hátíðina formlega
Skýr sýn og átta raunhæfar aðgerðir
Margrét Polly Hansen, verkefnastjóri hjá Háskólafélagi Suðurlands, kynnti Nýsköpunarstefnu Suðurlands. Stefnan byggir á þremur grunnstoðum: viðhorfi, fjármagni og innviðum. Hún inniheldur átta raunhæfar aðgerðir sem miða að því að byggja upp öflugra nýsköpunarumhverfi á Suðurlandi. Meðal aðgerða er uppbygging miðstöðvar nýsköpunar og atvinnuþróunar á Suðurlandi, aukin nýting á styrkjum, efling hringrásarhagkerfisins og verkfærakista fyrir sveitarfélög til að styðja við frumkvöðla á fyrstu stigum. Sjá nánar á vef Háskólafélags Suðurlands.

Margrét Polly Hansen verkefnastjóri nýsköpunar hjá HfSu kynnir Nýsköpunarstefnu Suðurlands
Í kjölfar kynningarinnar fóru fram líflegar pallborðsumræður undir stjórn Karenar Drafnar Kjartansdóttur. Þar ræddu Logi Már Einarsson menningar- og nýsköpunarráðherra, Bragi Bjarnason bæjarstjóri Árborgar, Jóna Bjarnadóttir frá Landsvirkjun, Ingunn Jónsdóttir framkvæmdastjóri SASS og Fjóla Einarsdóttir, meðstofnandi Livefood í Hveragerði, um áskoranir og tækifæri í stuðningsumhverfinu. Fjóla benti sérstaklega á mikilvægi þess stuðnings sem fyrirtæki hennar fékk á sínum tíma úr Uppbyggingarsjóði Suðurlands og nefndi að sveitarfélög gætu beitt fleiri hvötum, líkt og afslætti af fasteignagjöldum, til að styðja við sprotafyrirtæki.

Frá pallborði
Auðlindadrifin nýsköpun og hringrásarhagkerfi
Sveinn Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Orkídeu, flutti erindi um auðlindadrifna nýsköpun í matvælaframleiðslu. Hann benti á þá staðreynd að Sunnlendingar framleiði um 55% af raforku landsins en noti einungis um 3%. Mikil tækifæri felist í að nýta þessa orku og lífræna hliðarstrauma betur heima í héraði, til dæmis með uppbyggingu lífgasvera á stórum kúabúum til að auka fæðu- og orkuöryggi.
Valgerður B. Eggertsdóttir frá Orku náttúrunnar (ON) tók við keflinu og sagði frá nýsköpunarverkefnum í jarðvarmavinnslu. Hún kynnti meðal annars áform um að byggja upp nýsköpunarmiðstöðina Glóð við Hellisheiðarvirkjun, sem mun veita frumkvöðlum beinan aðgang að fjölbreyttum auðlindastraumum virkjunarinnar.
Sunnlenskar velgengnissögur og samstarf
Marta Rut Ólafsdóttir, meðstofnandi HorseDay sem varð til í Ölfusi, rakti vaxtarsögu snjallforritsins sem nú er notað af yfir 50.000 hestamönnum í 20 löndum. Hún undirstrikaði hversu dýrmætur Uppbyggingarsjóður Suðurlands var við að koma hugmyndinni af stað áður en stærri sjóðir og englafjárfestar komu að borðinu.
Sesselja Barðdal frá Drift EA ræddi verkefnið Kveikjan, sem tengir áskoranir starfandi fyrirtækja við lausnir frumkvöðla og sagði frá spennandi samstarfi við sunnlensk fyrirtæki. Að lokum brýndi Edda Konráðsdóttir, stofnandi Iceland Innovation Week, fyrir fundargestum mikilvægi þess að rækta nýsköpunarvistkerfið í sameiningu, því hugmyndir fæðist alls staðar en þær vaxi þar sem umhverfið styður við þær.
Fyrr um morguninn fór fram lokaviðburður viðskiptahraðalsins Startup Landið, þar sem tólf öflug nýsköpunarteymi af allri landsbyggðinni kynntu hugmyndir sínar. Dagskrá Uppsprettu Suðurlands sýndi svart á hvítu að framtíðin á Suðurlandi er skapandi, sjálfbær og samkeppnishæf.
Myndir frá Uppsprettu Suðurlands 2026
More articles

10. nóvember 2026
SASS og Sinfóníuhljómsveit Suðurlands í samstarfi við Þjóðaróperuna
Read more

5. nóvember 2026
Selfoss og Suðurland, hvert stefnir? Málþing 10.nóvember
Read more

3. nóvember 2026
Ársþing SASS 2026: Fjölmargar ályktanir samþykktar um eflingu landshlutans
Read more

2. nóvember 2026
DC NEST: nýtt Evrópuverkefni um sjálfbæra uppbyggingu gagnavera á norðurslóðum
Read more