IS

Back to overview

2. nóvember 2026

DC NEST: nýtt Evrópuverkefni um sjálfbæra uppbyggingu gagnavera á norðurslóðum

SASS er einn af fjórum samstarfsaðilum í nýju Evrópuverkefni, DC NEST (Data Centre NPA Ecosystem), sem er styrkt af Interreg Northern Periphery and Arctic (NPA) áætluninni. 

Markmið verkefnisins er að efla getu sveitarfélaga á NPA svæðinu til að taka upplýstar ákvarðanir um gagnaversfjárfestingar, með áherslu á umhverfisleg, samfélagsleg og efnahagsleg áhrif. Í gegnum verkefnið verða þróuð verkfæri og aðferðir sem styðja sveitarfélög við að meta orkuþörf, nýtingu umframorku (til dæmis affallsvarma) og samfélagslegan ávinning í tengslum við gagnaver, og styrkja þannig ákvarðanatöku og samstarf þvert á svæðið. 

Samstarfsaðilar í verkefninu eru Kajaani University of Applied Sciences (KAMK, Finnlandi, verkefnisstjóri), ERNACT (Írlandi), SASS (Íslandi) og Umeå háskóli (Svíþjóð). Verkefnið stendur yfir frá september 2026 til febrúar 2029 og hefur heildarfjárveitingu upp á 1.045.749 evrur, þar af 679.736,85 evrur í styrk frá NPA áætluninni. 

Hlutverk SASS í verkefninu er að tryggja að sjónarmið sveitarfélaga á Suðurlandi, þar á meðal umhverfisvernd, orkuöryggi og samfélagslegur ávinningur, séu höfð að leiðarljósi þegar teknar eru ákvarðanir um gagnaversfjárfestingar á svæðinu. 

Verkefnið er fjármagnað af Evrópusambandinu í gegnum Interreg Northern Periphery and Arctic (NPA) áætlunina.