IS

Back to overview

30. október 2026

Ársþing SASS ályktar: „Suðurland er ekki hraðbanki ríkissjóðs“

Ársþing Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) hefur samþykkt harðorða ályktun þar sem nýjum og sívaxandi álögum ríkisvaldsins á atvinnulíf og samfélög á Suðurlandi er mótmælt. Á þinginu, sem haldið var dagana 29. – 30. október á Hvolsvelli, kom skýrt fram að óásættanlegt sé að um helmingur nýrra skatttekna ríkisins eigi að koma úr Suðurkjördæmi, þar sem einungis um 9% landsmanna búa.

Verðmætasköpun á Suðurlandi stefnt í hættu

Suðurland hefur um árabil verið helsti drifkrafturinn í íslenskri ferðaþjónustu og atvinnuuppbyggingu. Í ályktuninni er bent á alvarlega mótsögn í stefnu stjórnvalda: Á sama tíma og kallað er eftir auknum fjárfestingum og öflugum byggðum er vegið að rekstrarumhverfi fyrirtækja í landshlutanum með ófyrirsjáanlegum skattahækkunum. Þar má nefna áform um náttúrupassa, hækkun virðisaukaskatts á baðlón og vegtolla, sem öll munu bitna hart á sunnlenskum almenningi og draga úr samkeppnishæfni.

Krafa um samráð og sanngjarna skiptingu

Ársþing SASS krefst þess að staldrað verði við og að þingmenn Suðurkjördæmis beiti sér fyrir frestun þessara áforma þar til óháð og heildstætt mat á áhrifum þeirra á Suðurland liggur fyrir. Samtökin leggja áherslu á að sunnlensk sveitarfélög og atvinnulíf séu ætíð reiðubúin að axla ábyrgð á uppbyggingu innviða, en slíkt verði að byggja á jafnræði, fyrirsjáanleika og raunverulegu samráði við heimafólk. Til að mynda verði að tryggja að tekjur af ferðaþjónustu skili sér til baka í þau samfélög þar sem álagið verður til.

Hér að neðan má lesa ályktun ársþingsins í heild sinni:

 

Suðurland er ekki hraðbanki ríkissjóðs!

Ályktun ársþings Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga

Ársþing Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) mótmælir harðlega sívaxandi álögum ríkisvaldsins á atvinnulíf og samfélög á Suðurlandi og gagnrýnir þann alvarlega skort á heildarsýn og raunverulegu samráði sem einkennt hefur undirbúning og innleiðingu þeirra.

Á sama tíma og ríkisstjórnin boðar umfangsmiklar skattahækkanir og nýjar tekjuöflunaraðgerðir er sérstaklega vegið að þeim atvinnugreinum sem hafa verið undirstaða öflugrar atvinnuuppbyggingar og verðmætasköpunar á Suðurlandi.

Um helming nýrra skatttekna á að sækja í Suðurkjördæmi þrátt fyrir að aðeins rúmlega 9% íbúa landsins búi þar. Slík aðför er óásættanleg!

Náttúrupassi, hækkun virðisaukaskatts á baðlón, kílómetragjald, vegtollar, loftbrú, óvissa um lagaumgjörð lagareldis ásamt fleiri álögum munu hafa alvarlegar afleiðingar á íbúa Suðurkjördæmis og leiða til tekjutaps bæði sveitarfélaga og ríkissjóðs og lakari lífskjara.

Það er alvarleg mótsögn í stefnu stjórnvalda að kalla eftir auknum fjárfestingum, öflugra atvinnulífi og sterkari byggðum en grafa um leið undan þeim markmiðum með sífellt auknum álögum og ófyrirsjáanlegu rekstrarumhverfi.

Ársþing SASS krefst þess að þingmenn Suðurkjördæmis beiti sér, þvert á flokkslínur, fyrir því að afgreiðslu fyrirhugaðra skattahækkana og annarra íþyngjandi breytinga verði frestað þar til óháð og heildstætt mat á samanlögðum áhrifum þeirra á atvinnulíf, fjárfestingar, verðmætasköpun og búsetuskilyrði á Suðurlandi liggur fyrir.

Ársþing SASS gagnrýnir einnig harðlega skort á raunverulegu samráði við sveitarfélögin. Samráð sem hefst eftir að meginstefna hefur verið mótuð og ákvarðanir í reynd teknar getur ekki talist raunverulegt samstarf ríkis og sveitarfélaga.

Ársþing SASS krefst þess að ríkisstjórn Íslands:

1. Falli frá áformum um sérstaka gjaldtöku á Þingvöllum, Gullfossi og Geysi og móti í staðinn samræmda og sanngjarna stefnu um gjaldtöku á ferðamannastöðum í eigu ríkisins á landsvísu.

2. Endurskoði fyrirhugaðar skattahækkanir á ferðaþjónustu, sérstaklega hækkun virðisaukaskatts á baðlón, og meti áhrif þeirra á fjárfestingar, atvinnuuppbyggingu og alþjóðlega samkeppnishæfni greinarinnar.

3. Leggi fram heildstætt og opinbert mat á samanlögðum áhrifum allra fyrirhugaðra skattahækkana og gjaldtöku, sundurliðað eftir landshlutum og miðað við íbúafjölda, atvinnugreinar og verðmætasköpun.

4. Tryggi að tekjur ríkisins af ferðaþjónustu skili sér með sanngjörnum hætti til uppbyggingar innviða á þeim svæðum þar sem álagið verður til. Nú þegar er árlegt skattspor ferðaþjónustunnar um 200 milljarðar og greiðir ferðaþjónustan um 50 milljarða í virðisaukaskatt.

5. Leggi fram frumvarp um lagareldi á vorþingi 2027. Mikilvægt er að þessari nýju atvinnugrein verði tryggð skýr lagaumgjörð og fyrirsjáanleiki.

6. Tryggi raunverulegt samráð við sveitarfélögin frá upphafi stefnumótunar og áður en ákvarðanir sem hafa veruleg áhrif á atvinnulíf og samfélög eru teknar.

Ársþing SASS leggur áherslu á að sunnlensk sveitarfélög og atvinnulíf eru reiðubúin til að axla sanngjarna ábyrgð á uppbyggingu innviða og fjármögnun sameiginlegrar þjónustu. Sú ábyrgð verður hins vegar að byggjast á jafnræði, fyrirsjáanleika og sanngjarnri skiptingu byrða.