Back to overview
12. október 2026
Vitum við hvað nágranninn er að skapa?

Eftir Margréti Pollý Hansen verkefnastjóra nýsköpunar hjá Háskólafélagi Suðurlands:
Suðurland er eitt fjölbreyttasta atvinnusvæði landsins. Hér verða til verðmæti á hverjum degi í ferðaþjónustu, landbúnaði, matvælaframleiðslu, iðnaði, orku, sjávarútvegi, þjónustu og nýsköpun. Samt vitum við oft minna en við ættum um starfsemi hvers annars.
Tækifæri í auknum sýnileika og tengslamyndun
Uppspretta verður haldin í Horseday-höllinni í Ölfusi dagana 6.–7. nóvember og er markmið hátíðarinnar að gefa fyrirtækjum á Suðurlandi tækifæri til að vera sýnileg, skapa ný tengsl og vera hluti af samtalinu um framtíð atvinnulífs á Suðurlandi.
Fyrirtæki þurfa ekki aðeins að vera góð í því sem þau gera. Þau þurfa líka að láta vita af sér. Veit fyrirtækið í næsta sveitarfélagi hvaða þjónustu þú býður upp á? Veit hugsanlegur samstarfsaðili hvaða þekking býr innan fyrirtækisins? Veit nýr viðskiptavinur að þú ert að vaxa, þróast eða leita nýrra tækifæra?
Eitt samtal getur leitt til nýrra viðskipta
Tækifæri verða sjaldnast til þegar allir halda sig hver í sínu horni. Þau verða til þegar fólk hittist.
Ekki missa af tækifærunum sem mögulega skapast og athyglinni sem sunnlenska atvinnulífið mun fá á Uppsprettu Suðurlands.
Uppspretta snýst því ekki bara um að vera með bás og dreifa bæklingum. Hún snýst um að vera á staðnum þegar samtölin eiga sér stað. Eitt samtal getur leitt til viðskipta, annað að nýju samstarfi og það þriðja að hugmynd sem hefði annars aldrei kviknað.
Nýsköpunarstefna Suðurlands kynnt
Nýsköpun er stór hluti hátíðarinnar af góðri ástæðu. Hún tilheyrir ekki aðeins sprotafyrirtækjum eða tæknigeiranum heldur öllum fyrirtækjum sem vilja þróast og finna nýjar leiðir til að skapa verðmæti.
Á Uppsprettu verður einnig nýsköpunarstefna Suðurlands kynnt. Hún byggir á víðtæku samráði og fjallar um hvernig styrkja megi nýsköpunarumhverfi landshlutans með breyttu hugarfari, sterkari innviðum og auknu aðgengi að þekkingu og fjármagni.
Öflugir bakhjarlar og skráning hafin
Öflugir bakhjarlar hafa þegar stigið fram. ON, Landsvirkjun og Rarik eru meðal styrktaraðila hátíðarinnar og sýna fram á mikilvægi þess að byggja upp sterkan vettvang fyrir atvinnulíf og nýsköpun á Suðurlandi.
Ætlar fyrirtækið þitt að vera með þegar atvinnulíf Suðurlands kemur saman dagana 6.–7. nóvember?
Eða ætlarðu að heyra eftir á hvað gerðist?
Skráning, dagskrá og nánari upplýsingar eru á www.uppspretta.sass.is.
More articles

9. október 2026
Ullarkögglar og Akur Bjór í Startup Landið 2026
Read more

7. október 2026
SASS sendir inn umsögn vegna Náttúrupassa: Aðför að sunnlenskri ferðaþjónustu
Read more

5. október 2026
Landsvirkjun styður við Uppsprettu Suðurlands
Read more

30. september 2026
Við erum einfaldlega sterkari saman- Hugleiðingar framkvæmdastjóra
Read more