Back to overview
9. október 2026
Ullarkögglar og Akur Bjór í Startup Landið 2026

Startup Landið 2026 er nýsköpunarhraðall ætlaður smáfyrirtækjum og frumkvöðlum af landsbyggðinni. Fjórtán metnaðarfull verkefni hafa nú verið valin til þátttöku. Þar á meðal eru tvö frumkvöðlaverkefni af Suðurlandi sem eiga það sameiginlegt að leggja áherslu á sjálfbærni, staðbundið hráefni og hringrásarhagkerfið. Hraðallinn veitir frumkvöðlum fræðslu og verkfæri til að þróa hugmyndir sínar áfram yfir sjö vikna tímabil.
Markmið Startup Landsins er að styðja við viðskiptahugmyndir um allt land, styrkja atvinnulíf og auka verðmætasköpun utan höfuðborgarsvæðisins. Samtök sunnlenskra sveitarfélaga eru einn af samstarfsaðilum hraðalsins ásamt öðrum landshlutasamtökum. Fjölbreytt verkefni taka þátt, allt frá heilsueflingu og ferðaþjónustu til nýrra tæknilausna í heilbrigðiskerfinu.
Ullarkögglar og Akur Bjór frá Suðurlandi
Tvö verkefni frá Suðurlandi hlutu þátttökurétt í ár. Annars vegar er það verkefnið Ullarkögglar, þar sem frumkvöðullinn Alice Sowa hefur hannað lífrænan áburð úr íslenskri ull. Verkefnið nýtir hráefni sem annars færi til spillis og fellur vel að sjónarmiðum hringrásarhagkerfisins.
Hins vegar er það verkefnið Akur Bjór sem Petrína Jónsdóttir leiðir. Þar er stefnt að framleiðslu á nýjum íslenskum bjór þar sem eingöngu verður stuðst við íslenskt bygg.

Alice Sowa vinstra megin með verkefnið Ullarkögglar sem breytir ull í áburð.
Til hægri má sjá aðstandendur Akurs Bjórs sem mun framleiða alíslenskan bjór.
Frá hugmynd til framkvæmdar á sjö vikum
Dagana 25. og 26. september hittust þátttakendur, samstarfsaðilar og sérfræðingar í tveggja daga vinnustofu í Borgarnesi þar sem áherslan var á tengslamyndun og skapandi vinnu. Næstu sjö vikurnar sækja þátttakendur vinnustofur, fá markvissa ráðgjöf frá sérfræðingum atvinnulífsins og móta viðskiptalíkön sín og markaðsáætlanir.
Hraðlinum lýkur formlega á Suðurlandi, en lokaviðburður Startup Landsins verður haldinn með viðhöfn á Uppsprettu Suðurlands í Horseday – höllinni í Ölfusi þann 6. nóvember næstkomandi. Þar gefst frumkvöðlunum tækifæri til að kynna fullmótaðar hugmyndir sínar fyrir fjárfestum og öðrum áhugasömum.

Verkefnastjórar Startup Landið sem unnið er í samvinnu landshlutasamtaka en þau veita stuðning við atvinnu og nýsköpun á landsbyggðinni.
Eftirtalin verkefni taka þátt í Startup Landinu 2026:
Ullarkögglar (Suðurland – SASS)
Framleiðsla á lífrænum áburði úr íslenskri ull sem annars færi forgörðum, í anda hringrásarhagkerfisins.
Þátttakandi: Alice Sowa.
Akur Bjór (Suðurland – SASS)
Nýsköpun í bruggun þar sem stefnt er að framleiðslu á bjór eingöngu úr íslensku byggi.
Þátttakandi: Petrína Jónsdóttir.
Hólmur Heilsa og Steinunn Saunagus (Suðurnes – SSS)
Uppbygging heilsu- og gufubaðsupplifunar sem eflir vellíðan og ferðaþjónustu á svæðinu.
Þátttakandi: Unnur Svava Sverrisdóttir.
Kraftý Café (Suðurnes – SSS)
Nýstárlegt kaffihús og upplifun sem efla samfélag og menningarlíf.
Þátttakendur: Alexandra Ósk Laxdal og Inga Hrönn Kristjánsdóttir.
Byrjum / Fjarheilbrigðistorg (Vestfirðir – VF)
Miðlægur stafrænn vettvangur sem sameinar fjarheilbrigðis- og velferðarþjónustu sérfræðinga til að tryggja íbúum landsbyggðarinnar jafnt aðgengi að þjónustu.
Þátttakandi: Þóra Kristín Bergsdóttir.
Valkyrju Ævintýri (Vestfirðir – VF)
Uppbygging ferðaþjónustu og upplifunar á Vestfjörðum allt árið um kring.
Þátttakandi: Jake Lampe.
Snigill – smár snigill, stórt prótein (Vesturland – SSV)
Sniglarækt sem opnar nýjar, sjálfbærar leiðir í matvæla- og próteinframleiðslu á Íslandi.
Þátttakandi: Sigríður Halldóra Gunnarsdóttir.
Sif's Hair Atelier (Vesturland – SSV)
Sérhæfðar og náttúrulegar hárlausnir í háum gæðaflokki sem efla sjálfstraust kvenna sem glíma við hármissi.
Þátttakandi: Laura Martin Merino.
Okkar norður ehf. (Norðurland vestra – SSNV)
Samstarfs- og markaðslíkan fyrir fyrirtæki og stofnanir sem nýtir stafræna miðlun til að efla sýnileika svæðisins.
Þátttakandi: Sigurjón Arthur Friðjónsson.
BlómAría (Norðurland vestra – SSNV)
Nýsköpunarverkefni á sviði blómaræktar og hönnunar í heimabyggð.
Þátttakandi: Anna Sif Ingimarsdóttir.
Dálæti (Austurland – Austurbrú)
Hönnun og framleiðsla á séríslenskum skartgripum og vörum sem vekja fortíðarþrá og kátínu.
Þátttakandi: Guðdís Jóhannadóttir.
Fjarðarhjól ehf. (Austurland – Austurbrú)
Hjóla- og afþreyingarferðaþjónusta sem nýtir náttúru og landslag Austfjarða.
Þátttakandi: Árni Magnús Magnusson.
Syðra Holt ehf. (Norðurland eystra – SSNE)
Lífrænt kaffihús, vinnustofa og framleiðslueldhús fyrir afurðir af býlinu í Svarfaðardal.
Þátttakandi: Alejandra Gabriela Soto Hernández.
AllergyID (Norðurland eystra – SSNE)
Tæknilausn og smáforrit sem auðvelda fólki með fæðuóþol og ofnæmi að finna matvæli og þjónustu við hæfi.Þátttakandi: Bjarni Þór Ævarsson.



