IS

Back to overview

5. nóvember 2026

Selfoss og Suðurland, hvert stefnir? Málþing 10.nóvember

Hvernig hefur Selfoss þróast á undanförnum árum, hvað ræður búsetuvali fólks og hvaða áhrif hefur vöxtur bæjarins á atvinnulíf, samfélag og byggðaþróun á Suðurlandi? Þetta eru meðal þeirra spurninga sem ræddar verða á opnu málþingi á Hótel Selfossi þriðjudaginn 10. nóvember.

Háskólafélag Suðurlands, SASS og Háskóli Íslands standa sameiginlega að málþinginu sem ber yfirskriftina Selfoss og Suðurland, hvert stefnir?

Þóroddur Bjarnason, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, hefur undanfarin ár unnið að rannsóknarverkefni um byggðaþróun á Selfossi, Suðurlandi og víðar á suðvesturhorni landsins, í samstarfi við dr. Tialdu Haartsen, prófessor við Háskólann í Groningen í Hollandi.

Tialda hefur rannsakað byggðaþróun í Evrópu í meira en tvo áratugi, meðal annars á Íslandi. Hún er nú stödd hér á landi í tengslum við rannsóknina og munu þau Þóroddur ferðast um Suðurland vegna viðtala og frekari gagnasöfnunar.

Í rannsókninni er meðal annars skoðaður vöxtur Selfoss, búsetuval og samsetning íbúa, tengsl við höfuðborgarsvæðið og hlutverk bæjarins sem atvinnu- og þjónustukjarna fyrir Suðurland. Málþingið er liður í rannsóknarverkefninu og gefur jafnframt tækifæri til að ræða þróunina út frá sjónarhóli heimafólks.

Raddir heimafólks

Sérstakur dagskrárliður verður helgaður röddum heimafólks þar sem fjórir einstaklingar deila ólíkri reynslu af búsetu á svæðinu og breytingum í samfélaginu.

Nýr íbúi segir frá því hvernig er að flytja til Selfoss án þess að hafa þar fyrir tengslanet, fulltrúi yngri kynslóðarinnar lýsir sinni upplifun af því að búa á svæðinu og rótgróinn Selfyssingur veltir fyrir sér breytingum sem orðið hafa á bænum. Þá segir einstaklingur sem flutti aftur heim frá reynslu sinni af því að snúa til baka eftir langa búsetu annars staðar.

Að lokum fara fram pallborðsumræður með bæjarstjóra Árborgar og sveitarstjórum Flóahrepps og Rangárþings eystra, þar sem meðal annars verður rætt um framtíðarþróun svæðisins, tækifæri og áskoranir. Gestum gefst kostur á að taka þátt í umræðunum með spurningum úr sal.

Málþingið er öllum opið og eru íbúar, fulltrúar atvinnulífs, sveitarfélaga og aðrir áhugasamir hvattir til að mæta.

 

Dagskrá

Selfoss og Suðurland, hvert stefnir?

Þriðjudaginn 10. nóvember 2026, Hótel Selfoss

8:15 Húsið opnar

8:30 Setning
Ingveldur Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Háskólafélags Suðurlands

8:35 Þóroddur Bjarnason, prófessor Háskóla Íslands
Hvernig Selfoss? Þróun, staða og framtíðarhorfur

8:55 Tialda Haartsen, prófessor við Háskólann í Groningen, Hollandi
Rural leavers, mental stayers and rural return migration: A Dutch perspective

9:10 Raddir heimafólks

Kristín Linda Jónsdóttir, sálfræðingur, nýr íbúi

Rebekka Rut Leifsdóttir Söring, rödd yngri kynslóðarinnar

Kjartan Björnsson, rakari, rótgróinn Selfyssingur

Jóna Katrín Hilmarsdóttir, skólameistari ML, snúbúi

 

9:40 Pallborð sveitarstjórnarfólks og spurningar úr sal

Bragi Bjarnason, bæjarstjóri Árborgar

Hulda Kristjánsdóttir, sveitarstjóri Flóahrepps

Anton Kári Halldórsson, sveitarstjóri Rangárþings eystra og formaður stjórnar SASS

 

10:10 Samantekt og lokaorð

Þóroddur Bjarnason, prófessor HÍ

10:20 Málþingsslit

 

Fundarstjóri er Lína Björg Tryggvadóttir, verkefnastjóri SASS