IS

Back to overview

26. ágúst 2026

Sameiginlegur vinnufundur byggðaþróunarfulltrúa Suðurlands

Byggðaþróunarfulltrúar á Suðurlandi komu saman til rýni- og vinnufundar dagana 17.–18. ágúst. Fundurinn var að mestu helgaður tveimur af mikilvægustu stýritækjum landshlutans: Sóknaráætlun Suðurlands annars vegar og hlutverki byggðaþróunarfulltrúa hins vegar.

Markmið fundarins var að greina áskoranir og tækifæri svæðisins og tryggja að vinnan næstu árin skili sem mestum árangri fyrir sunnlenskt samfélag og atvinnulíf.

Sóknaráætlun mæti áskorunum svæðisins

Fyrri dagur fundarins fór í yfirferð á Sóknaráætlun Suðurlands, þar sem rýnt var í hvort markmið áætlunarinnar endurspegli nægilega vel þær hröðu samfélagsbreytingar sem eiga sér stað. Meðal þeirra mála sem brunnu hæst á fundarmönnum voru samgöngur, þörfin á fjölbreyttara atvinnulífi og efling mannauðs og menntunar.

Einnig var kallað eftir sterkari áherslu á inngildingu og virka samfélagsþátttöku allra íbúa. Þá var mikilvægi þess rætt að tryggja aðgengi að betri og nákvæmari staðbundnum gögnum til að styðja við upplýsta ákvarðanatöku í landshlutanum.

Byggðaþróunarfulltrúar: Tengiliðir nærsamfélagsins

Seinni hluti fundarins var sérstaklega tileinkaður starfi og verkefnum byggðaþróunarfulltrúa. Byggðaþróunarfulltrúar eru staðbundnir tengiliðir og sérfræðingar á vegum SASS og starfa á sjö atvinnusóknarsvæðum víðs vegar um Suðurland.

Hlutverk þeirra er gríðarlega mikilvægt, ekki síst við að leiðbeina, efla tengslanet og veita frumkvöðlum og atvinnulífi stuðning við nýsköpun og verkefnaþróun. Á fundinum kom meðal annars fram mikilvægi þess að aðstoða við upplýsingamiðlun, fjölmenningarmál og að gera þjónustu byggðaþróunarfulltrúanna enn sýnilegri og skýrari fyrir íbúum og fyrirtækjum á svæðinu.

Niðurstöður vinnufundarins verða nú unnar áfram af starfsfólki SASS og nýttar beint við gerð starfsáætlunar byggðaþróunarfulltrúa og aðgerðaáætlunar Sóknaráætlunar Suðurlands fyrir árið 2027.

Kynnisferð um Uppsveitir Árnessýslu

Að vinnufundum loknum fór hópurinn í vettvangsferð og heimsótti Laugarvatn Fontana, þar sem tekið var á móti hópnum og kynntar framkvæmdir á svæðinu ásamt smakki af nýbökuðu hverabrauði og slökun í böðunum. Dagskránni lauk svo með sameiginlegum kvöldverði á eþíópíska veitingastaðnum Minilik á Flúðum.

Byggðaþróunarfulltrúarnir heimsóttu meðal annars Fontana á laugarvatni

mynd: facebooksíða Fonatana