Back to overview
16. október 2025
Umsóknarfrestur Uppbyggingarsjóðs Suðurlands framlengdur

Umsóknarfrestur Uppbyggingarsjóðs Suðurlands framlengdur
Umsóknarfrestur fyrir haustúthlutun úr Uppbyggingarsjóði Suðurlands hefur verið framlengdur fram á þriðjudaginn 28. október kl. 12:00. Áður auglýstur umsóknarfrestur var miðvikudaginn 22. október kl. 12:00.
Hvaða verkefni eru styrkhæf?
Uppbyggingarsjóður Suðurlands hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki á sviði atvinnuþróunar, nýsköpunar og menningar á Suðurlandi.
Í flokki atvinnuþróunar og nýsköpunar eru það atvinnuskapandi og/eða framleiðniaukandi verkefni sem eiga kost á stuðningi ásamt nýsköpunarverkefnum sem efla fjölbreytileika atvinnulífs. Markmið menningarflokks sjóðsins er að verkefnin efli menningarstarfsemi og listsköpun á Suðurlandi.
Vönduð umsókn er lykilatriði
Umsækjendum er bent á að kynna sér vel úthlutunarreglur sjóðsins, áherslur, markmið og mat á umsóknum sem eru aðgengilegar hér. Sjóðurinn er samkeppnissjóður og eru vel mótuð verkefni, skýrar og góðar umsóknir líklegri til að hljóta styrki.
Umsóknir fyrir verkefni í sjóðinn geta uppfyllt eina eða fleiri áherslur sjóðsins en skilyrði er að öll verkefni uppfylli að lágmarki markmið sjóðsins í þeim flokki sem það tilheyrir, menningu eða atvinnu- og nýsköpun.
Aðstoð og ráðgjöf fyrir umsækjendur
Byggðaþróunarfulltrúar SASS eru staðsettir víða á Suðurlandi og aðstoða við mótun verkefna og veita ráðgjöf. Sunnlendingar eru hvattir til að nýta sér þá ráðgjöf og þjónustu sem í boði er, bæði vegna umsókna í Uppbyggingarsjóð sem önnur verkefni á sviði atvinnuþróunar, nýsköpunar og menningar. Á ráðgjafasíðu SASS má jafnframt nálgast gagnlegar upplýsingar og leiðbeiningar um gerð umsókna.
Rafræn skil og önnur mikilvæg atriði
Allar umsóknir þurfa að berast rafrænt í gegnum umsóknarvef sjóðsins. Umsækjandi þarf að skrá sig inn á umsóknarformið með rafrænum skilríkjum og þarf að hafa lögheimili á Suðurlandi.
Athugið að ekki er hægt að breyta kennitölu og nafni umsækjanda eftir að umsókn hefur verið stofnuð.
Hægt er að kynna sér sjóðinn nánar á heimasíðunni www.sass.is/uppbyggingarsjodur
Umsóknir skulu berast fyrir kl. 12.00 þann 28. október 2025.
More articles

17. júlí 2026
Sveitarfélög um allt land krefjast svara um framtíð heilbrigðiseftirlitsins
Read more

13. júlí 2026
Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó
Read more

8. júlí 2026
FabLab-smiðjur á Suðurlandi fá tvær milljónir króna til að efla stafræna hæfni ungmenna
Read more

6. júlí 2026
Úr Hvolnum í Tjarnarbíó: VOX Rangárþing sýnir ÁST í höfuðborginni
Read more