Back to overview
6. júlí 2026
Úr Hvolnum í Tjarnarbíó: VOX Rangárþing sýnir ÁST í höfuðborginni

Kórverkið ÁST eftir „VOX Rangárþing“ heldur til Reykjavíkur í haust þar sem kórinn mun sýna í Tjarnarbíó dagana 24. og 25. október næstkomandi. Sýningin braut upp hið hefðbundna form kórsýninga og fléttaði saman tónlist, leikhús og persónulegar sögur kórmeðlima. ÁST sló rækilega í gegn á Suðurlandi þar sem sýndar voru þrjár uppseldar sýningar í félagsheimilinu Hvoli á Hvolsvelli fyrr á þessu ári. Verkefnið hófst á algjörum núllpunkti en hlaut úthlutun að fjárhæð 600.000 krónur úr Uppbyggingarsjóði Suðurlands árið 2025, sem gerði kórnum kleift að láta þessa metnaðarfullu sýningu verða að veruleika.
Stuðningur Uppbyggingarsjóðs skipti sköpum
Bjarki Eiríksson, meðlimur VOX kórsins í Rangárvallasýslu, segir í samtali að stuðningur sjóðsins hafi skipt sköpum fyrir hópinn. Kórinn kom fyrst saman í september 2025 og byrjaði með engin önnur fjárráð en félagsgjöld meðlima. Að sögn Bjarka var styrkurinn frá Uppbyggingarsjóðnum því ómetanlegur til þess að hægt væri að hleypa verkefninu af stokkunum. Hann játar að móttökurnar heima í héraði hafi farið fram úr öllum væntingum og tilfinningin að finna stuðning Sunnlendinga hafi verið óraunveruleg. Gríðarlegt þakklæti og auðmýkt standi eftir tveggja klukkustunda ferðalag um sammannlegar tilfinningar á Hvolsvelli.

Bjarki Eiríksson er meðlimur kórsins
Mynd: Hjörtur Leví Pétursson
Tónlistin sem brú á milli ólíkra menningarheima
Það sem gerir VOX Rangárþing sérstakan er hversu vel hann endurspeglar samfélagið í héraðinu. Um 50 virkir söngvarar skipa kórinn og eru um 20% þeirra af erlendum uppruna, sem er einmitt sama hlutfall og búsett er í Rangárþingi.
Bjarki lýsir tónlistinni sem alheimstungumáli sem bindur saman alla liti regnbogans og litróf mennskunnar. Þrátt fyrir ólíkan bakgrunn og uppruna tali kórmeðlimir allir sama tungumál tónlistarinnar á miðvikudagskvöldum. Frá upphafi hefur kórinn verið öruggur staður til að prófa sig áfram og vaxa saman þar sem kórstjórn og framleiðsla er í höndum Arilíusar Marselínussonar, Harpa Rún Kristjánsdóttir sér um listræna stjórnun, leikstjórn er í höndum Gábors Tengely og Sandra Rún Jónsdóttir annast tónlistarstjórn. Samheldnin dýpkaði enn frekar þegar kórfélagar deildu sönnum sögum sínum um áföll, andleg veikindi og áskoranir í lífinu, en þær frásagnir mynduðu grunninn að handriti sýningarinnar.
Listir eiga sér engin landamæri
Leiðin liggur nú á höfuðborgarsvæðið eftir að listrænir stjórnendur Tjarnarbíós völdu VOX Rangárþing úr hópi umsækjenda til að setja verkið upp í Reykjavík í haust. Bjarki leggur áherslu á að þessi áfangi sýni að það sé fullkomlega hægt að setja á svið stór og tæknilega flókin menningarverkefni á minni stöðum á Suðurlandi, rétt eins og í Reykjavík. Listir og menning eigi sér hreinlega engin landamæri.
Metnaðurinn er mikill hjá kórnum og andinn frábær en undirbúningur er þegar hafinn fyrir næsta starfsár og ný verkefni sem taka við eftir sýningarnar í Tjarnarbíói í október.
Feliri myndir má sjá hér að neðan. Ljósmyndir: Hjörtur Leví Pétursson

Mynd: Hjörtur Leví Pétursson

Mynd: Hjörtur Leví Pétursson

Mynd: Hjörtur Leví Pétursson
More articles

3. júlí 2026
Pistill framkvæmdastjóra: Fræin farin að kíkja upp úr moldinni
Read more

3. júlí 2026
Nýr vefur SASS tekinn í notkun
Read more

2. júlí 2026
Átta milljónir króna til að efla nýsköpun í sunnlensku atvinnulífi
Read more

26. júní 2026
Fyrsta styrkveiting úr Hörpusjóðnum: „Voices of Vík“ hlýtur eina milljón króna
Read more