Back to overview
19. maí 2014
Skorað á heilbrigðiráðherra að skipa starfshóp vegna hjúkrunarrýma á Suðurlandi

Á stjórnarfundi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) þriðjudaginn 13. maí var m.a. fjallað um hjúkrunarrými á Suðurlandi og stöðuna í málaflokknum. Unnur Þormóðsdóttir, stjórnarmaður hjá SASS, bæjarfulltrúi í Hveragerði og formaður vistunarmatsnefndar á Suðurlandi gerði grein fyrir biðlistum eftir hjúkrunar- og hvíldarrýmum. Í máli hennar koma fram að Í heilbrigðisumdæmi Suðurlands eru 23 einstaklingar á biðlista eftir hjúkrunarrými, þar af 12 í Árnessýslu, 6 í Rangárvallasýslu, 3 í Vestmannaeyjum og 2 á Höfn í Hornafirði. Á biðlista eftir hvíldarými eru 43 einstaklingar; 22 í Árnessýslu, 8 í Rangárvallasýslu, 8 í Vestmannaeyjum og 5 á Kirkjubæjarklaustri. Tekið skal fram að hluti af þeim sem bíða eftir hvíldarrými eru á biðlista eftir hjúkrunarrými.
Áskorun til heilbrigðisráðherra
Stjórn SASS samþykkti samhljóða eftirfarandi ályktun á fundinum: ,,Í ljósi þess að langir biðlistar eru eftir hjúkrunarrýmum á Suðurlandi ítreka Samtök sunnlenskra sveitarfélaga enn og aftur ósk um að heilbrigðisráðherra skipi starfshóp með þátttöku sveitarfélaganna á Suðurlandi um stefnumörkun og framkvæmdaáætlun um uppbyggingu aukins hjúkrunarýmis á Suðurlandi. Stefnumörkunin taki mið af þörf fyrir nýtt hjúkrunarrými skv. biðlistum, endurnýjun eldra húsnæðis (einsmannsstofur í stað fjölbýla) og byggingu nýrra hjúkrunarrýma í stað ónothæfs húsnæðis. Jafnframt verði kannaðir möguleikar á aukinni heimahjúkrun.“

More articles

24. ágúst 2026
Ný stjórn og starfsfólk SASS stilla saman strengi
Read more

20. ágúst 2026
Beint frá býli dagurinn haldinn hátíðlegur sunnudaginn 23. ágúst
Read more

19. ágúst 2026
Opnað fyrir styrki til pólsk-íslenskra samstarfsverkefna
Read more

17. ágúst 2026
Ríkisstjórnin á Höfn: Árangur í innviðamálum en kallað á frekari aðgerðir
Read more