Back to overview
9. september 2026
Mesta fjölgun ríkisstarfa á Suðurlandi – samt með lægsta hlutfall stöðugilda

Mesta fjölgun ríkisstarfa á Suðurlandi – samt með lægsta hlutfall stöðugilda
Á nýliðnu ári varð mesta fjölgun ríkisstarfa á landinu öllu á Suðurlandi. Samkvæmt nýrri skýrslu Byggðastofnunar um staðsetningu stöðugilda á vegum ríkisins bættust 79 ný störf við í landshlutanum á milli áranna 2024 og 2025, sem jafngildir 4,4% vexti.
Stór hluti fjölgunarinnar í Árborg og Uppsveitum
Vöxturinn á Suðurlandi er drifinn áfram af uppbyggingu á grunnþjónustu landshlutans. Sveitarfélagið Árborg trónir á toppnum yfir öll sveitarfélög landsins með fjölgun upp á 74 stöðugildi. Þessa fjölgun má að stærstum hluta rekja til fjölgunar stöðugilda hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) og Lögreglunni á Suðurlandi.
Í Hrunamannahreppi ríflega fjórfölduðust ríkisstörf, úr þremur í fjórtán, í kjölfar opnunar nýrrar heilsugæslu á Flúðum. Þá fjölgaði stöðugildum um sjö í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, eða sem nemur ríflega 14%, aðallega í tengslum við starfsemi Landsvirkjunar á svæðinu. Einnig varð ágætis vöxtur í Mýrdalshreppi, Bláskógabyggð, Vestmannaeyjum, Skaftárhreppi og Ölfusi.

Tækifæri til sóknar þar sem dregur saman
Þótt heildarmyndin sé afar björt fyrir Suðurland sýna gögnin einnig samdrátt í ákveðnum sveitarfélögum. Störfum fækkaði í Hveragerði um átta, meðal annars hjá Ási dvalar- og hjúkrunarheimili og Heilsustofnun NLFÍ.
Þegar rýnt er í tölur fyrir Rangárvallasýslu kemur í ljós að í Rangárþingi eystra fækkaði stöðugildum um sjö, sem skýrist meðal annars af tilflutningi starfa hjá Lögreglunni á Suðurlandi.
Í Rangárþingi ytra fækkaði stöðugildum um sex. Sú fækkun skýrist meðal annars af færslu á störfum sem áður heyrðu undir Umhverfisstofnun. Þann 1. janúar 2025 tóku Náttúruverndarstofnun annars vegar og Umhverfis- og orkustofnun hins vegar við verkefnum Umhverfisstofnunar. Hefur hluti af starfsemi hinnar nýju Náttúruverndarstofnunar fengið aðsetur í Rangárþingi eystra og er sá hluti skilgreindur sem höfuðstöðvar stofnunarinnar, sem hefur þá þýðingu að forstjóri og hluti yfirstjórnar eru staðsett í sveitarfélaginu. Lítils háttar samdráttur mældist einnig í Grímsnesi og Grafningi ásamt Hornafirði.

Suðurland samt með lægsta hlutfall á landsvísu
Þótt fjölgunin sé afar jákvæð fyrir landshlutann dregur skýrslan einnig fram athyglisverða skekkju sem SASS mun beita sér fyrir að leiðrétta. Suðurland er fjölmennasti landshlutinn utan höfuðborgarsvæðisins en er þrátt fyrir það með lægsta hlutfall ríkisstöðugilda miðað við mannfjölda á vinnualdri. Einungis 7,7% íbúa á vinnualdri á Suðurlandi starfa hjá ríkinu, á meðan hlutfallið er 12% á höfuðborgarsvæðinu og tæp 12% á Norðurlandi vestra. Þetta undirstrikar að þrátt fyrir mikla fólksfjölgun og grósku á Suðurlandi hefur fjölgun ríkisstarfa til lengri tíma ekki haldið í við þá þróun.

More articles

7. október 2026
SASS sendir inn umsögn vegna Náttúrupassa: Aðför að sunnlenskri ferðaþjónustu
Read more

5. október 2026
Landsvirkjun styður við Uppsprettu Suðurlands
Read more

30. september 2026
Við erum einfaldlega sterkari saman- Hugleiðingar framkvæmdastjóra
Read more

28. september 2026
Suðurland í fararbroddi í uppbyggingu íbúða: Ölfus trónir á toppnum á landsvísu
Read more