Back to overview
22. ágúst 2014
Kjötsúpuhátíðin á Hvolsvelli

Kjötsúpuhátíðin verður haldin á Hvolsvelli helgina 29. - 30. ágúst nk. Þorpið og sveitarfélagið verður allt skreytt á litríkan hátt og fólk kemur saman og nýtur veglegrar dagskrár. Nafnið dregur hátíðin af þeirri hefð Sláturfélags Suðurlands að bjóða upp á kjötsúpu fyrir gesti og gangandi á laugardeginum. Á föstudagskvöldinu verða nokkrir heimamenn með opið hús og bjóða í súpu. Fjölbreytt dagskrá verður á laugardeginum sem endar með Vallarsöng undir stjórn Magna Ásgeirssonar.
Hér má sjá dagskrá helgarinnar

More articles

26. ágúst 2026
Styrkjagátt SASS opnuð: Allir sjóðir á einum stað
Read more

26. ágúst 2026
Sameiginlegur vinnufundur byggðaþróunarfulltrúa Suðurlands
Read more

24. ágúst 2026
Ný stjórn og starfsfólk SASS stilla saman strengi
Read more

20. ágúst 2026
Beint frá býli dagurinn haldinn hátíðlegur sunnudaginn 23. ágúst
Read more