Back to overview
9. febrúar 2015
Einstök íslensk upplifun - tilraunaverkefni í ferðþjónustu

Einstök íslensk upplifun er 6-9 mánaða tilraunaverkefni á vegum Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.
Óskað er eftir samstarfi við þrjú til fimm starfandi fyrirtæki sem vilja aðstoð við að greina sóknarfæri sín og auðga upplifun ferðamanna.
Markmið verkefnisins er að auka virði vöru og þjónustuframboð íslenskrar ferðaþjónustu með aðferðarfræði skapandi greina og upplifunartengdrar ferðaþjónustu. Verkefninu er ætlað að stuðla að auknu þverfaglegu samstarfi milli aðila innan ferðaþjónustu og skapandi greina og stuðla þannig að nýsköpun, samkeppnishæfni og þekkingarmiðlun í ferðaþjónustu.
Leitast verður eftir því að þátttakendur í verkefninu hljóti framúrskarandi þjálfun, leiðsögn og þjónustu reyndra aðila innan skapandi greina ásamt verkefnastjórum Nýsköpunarmiðstöðvar, á meðan á verkefninu stendur og skulu vera reiðubúnir til að miðla af þekkingu sinni til annarra ferðaþjónustufyrirtækja
Verkefnið er opið fyrir umsóknir til 15. febrúar 2015
More articles

26. ágúst 2026
Styrkjagátt SASS opnuð: Allir sjóðir á einum stað
Read more

26. ágúst 2026
Sameiginlegur vinnufundur byggðaþróunarfulltrúa Suðurlands
Read more

24. ágúst 2026
Ný stjórn og starfsfólk SASS stilla saman strengi
Read more

20. ágúst 2026
Beint frá býli dagurinn haldinn hátíðlegur sunnudaginn 23. ágúst
Read more