Laugardaginn 17. janúar verður haldinn opinn fundur fyrir alla áhugasama um starfsemi Bókabæjanna austanfjalls í Frystihúsinu á Eyrarbakka (Áður Gónhóll)
Dagskrá:
- Kynning á stöðu verkefnisins.
 - Kynning á hugmynd um prentsögusetur.
 - Stofnun væntanlegra vinnuhópa.
 - Leshópur sjálfboðaliða sem vilja lesa fyrir aðra.
 - Skrásetning og kortlagning á bókmenningu í Bókabæjunum.
 - Menningardagskrá á vegum bókabæjanna (barnabókahátíð, bókamarkaður ofl.).
 - Bókabæjarferð – Þýskaland í haust?
 
Kaffi og kleinur og allir velkomnir.