Til baka í yfirlit
12. október 2011
Yfirlýsing vegna réttargeðdeildar að Sogni

Yfirlýsing Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga mótmæla harðlega þeirri ákvörðun forráðamanna Landspítalans háskólasjúkrahúss að leggja niður réttargeðdeildina á Sogni. Ákvörðunin er illskiljanleg.því ekki hefur verið sýnt fram á hagræði þess að flytja starfsemina á höfuðborgarsvæðið og sparnaður i meira lagi vafasamur auk þess sem að fyrir liggur að leggja þarf í stofnkostnað til að tryggja deildinni þá umgjörð sem þarf á nýjum stað. Samtökin mótmæla tilflutningi starfa af landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins sem er í hróplegri mótsögn við yfirlýsta byggðastefnu stjórnvalda. Á réttargeðdeildinni starfa nú um 30 starfsmenn með búsetu i Árborg, Hveragerði , Ölfusi og Flóahreppi og því um verulegt högg að ræða fyrir atvinnulíf þess svæðis.

Fleiri fréttir

3. nóvember 2026
Ársþing SASS 2026: Fjölmargar ályktanir samþykktar um eflingu landshlutans
Lesa nánar

2. nóvember 2026
DC NEST: nýtt Evrópuverkefni um sjálfbæra uppbyggingu gagnavera á norðurslóðum
Lesa nánar

30. október 2026
Ársþing SASS ályktar: „Suðurland er ekki hraðbanki ríkissjóðs“
Lesa nánar

30. október 2026
Leikfélag Sólheima hlýtur Menningarverðlaun Suðurlands 2026
Lesa nánar