Til baka í yfirlit
4. febrúar 2021
Kynningarfundur Uppbyggingarsjóðs Suðurlands - myndband

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) stóðu fyrir opnum kynningarfundi um Uppbyggingarsjóð Suðurlands fimmtudaginn 4. febrúar 2021. Fundurinn var í beinu streymi á ZOOM og eru allir áhugasamir hvattir til að horfa á upptökuna hér að neðan þar sem farið er yfir markmið, áherslur og umsóknarferli sjóðsins ásamt því að ráðgjöf SASS var kynnt.
Sjóðurinn er nú opinn fyrir umsóknir og rennur umsóknarfrestur út 2. mars 2021 kl. 16:00. Um er að ræða fyrri úthlutun þessa árs. Sjóðurinn hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki sem skiptast í tvo flokka, annars vegar atvinnu og nýsköpun og hins vegar menningu.
https://youtu.be/r9Ure-lDIo8
Umsækjendur og aðrir áhugasamir eru velkomnir að hafa samband við ráðgjafa á vegum SASS og fá aðstoð og/eða leiðbeiningar við gerð umsókna. Hægt er að fá upplýsingar um ráðgjöfina á vefsíðu SASS, einnig má hafa samband í síma 480-8200 eða með því að senda fyrirspurn á netfangið styrkir@sudurland.is
Nánari upplýsingar um sjóðinn hér
Umsóknir skulu berast fyrir kl. 16.00 þann 2. mars 2021

Fleiri fréttir

29. júlí 2026
Eyjagöng: Hafbotnsmælingum lokið og borun gengur vel
Lesa nánar

17. júlí 2026
Sveitarfélög um allt land krefjast svara um framtíð heilbrigðiseftirlitsins
Lesa nánar

13. júlí 2026
Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó
Lesa nánar

8. júlí 2026
FabLab-smiðjur á Suðurlandi fá tvær milljónir króna til að efla stafræna hæfni ungmenna
Lesa nánar