Til baka í yfirlit
17. september 2013
Vika símenntunar í iðnaði á Suðurlandi
IÐAN fræðslusetur efnir til viku símenntunar í iðnaði á Suðurlandi 23. - 27. september. Í boði verður fjöldi námskeiða, kynning á iðn- og verknámi auk þess sem starfsmenn IÐUNNAR munu heimsækja vinnustaði. Skráning á námskeið og nánari upplýsingar um vikuna má finna á www.idan.is/sudurland.
Í tengslum við vikuna verður haldið málþing á Hótel Selfossi þann 27. september kl. 13.00 - 17.00 undir yfirskriftinni Atvinnutækifæri til framtíðar. Á málþinginu verður fjallað um uppbyggingu atvinnulífs og framboð á menntun í framtíðinni á Suðurlandi. Fyrirlesarar mun greina frá þeirri uppbyggingu og nýsköpun sem þegar hefur átt sér stað og framtíðarsýn fyrir svæðið.
Málþingið er opið öllum á meðan húsrúm leyfir.
Deila frétt
Fleiri fréttir

18. september 2026
Breytingar á starfsemi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands um næstu áramót
Lesa nánar

17. september 2026
Orka náttúrunnar verður bakhjarl Uppsprettu Suðurlands
Lesa nánar

16. september 2026
Uppbyggingarsjóður Suðurlands hefur opnað fyrir umsóknir
Lesa nánar

16. september 2026
SS, Reykjagarður og Límtré Vírnet taka þátt í taka þátt í fyrstu lotu Kveikjunnar
Lesa nánar