Til baka í yfirlit
30. september 2026
Við erum einfaldlega sterkari saman- Hugleiðingar framkvæmdastjóra

„Sameinuð um Suðurland“ eru orð sem við hjá SASS höfum lagt áherslu á og lýsa vel þeirri trú að við náum lengra þegar við vinnum saman og nýtum þann kraft og þekkingu sem býr í landshlutanum. Eftir mitt fyrsta landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga fékk þessi hugsun enn víðari merkingu fyrir mér. „Sameinuð um Suðurland“ víkkaði á vissan hátt út í setninguna „Sterkari saman“.
Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga er haldið á fjögurra ára fresti, í kjölfar sveitarstjórnarkosninga. Þar koma saman fulltrúar víðs vegar að af landinu og eitt af mikilvægustu verkefnum þingsins er að móta stefnu Sambandsins og leggja línurnar fyrir starfið næstu fjögur árin.
Samstaða og sameiginleg markmið
Þetta var í fyrsta sinn sem ég tók þátt í landsþinginu og það sem situr einna sterkast eftir er tilfinningin fyrir þeim krafti og samstöðu sem býr í sveitarstjórnarstiginu. Aðstæður og viðfangsefni eru ólík eftir landshlutum, en markmiðin eru að mörgu leyti þau sömu: að skapa góð skilyrði til búsetu og byggja upp sterk og farsæl samfélög um allt land.
Samstillt átak sveitarfélaga gegn verðbólgu
Þessi sameiginlega ábyrgð birtist með skýrum hætti á þinginu þegar sveitarfélögin lýstu yfir vilja til að leggja sitt af mörkum í baráttunni gegn verðbólgu og stuðla að auknum stöðugleika með því að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5% árið 2027. Um leið voru skýr skilaboð um að árangur kalli á samstillt átak og að ríkið þurfi að taka þátt með sambærilegum hætti.
Krafa um raunverulegt samstarf ríkis og sveitarfélaga
Mér fannst ekki síður mikilvægt að heyra þá skýru kröfu að samskipti ríkis og sveitarfélaga byggist á trausti, gagnkvæmum skilningi og raunverulegu samstarfi. Sveitarfélög eiga ekki að koma að borðinu þegar ákvarðanir hafa þegar verið teknar, heldur þurfa þau að vera virkir þátttakendur frá upphafi, ekki síst þegar nýjum verkefnum og fjárhagslegum skuldbindingum er úthlutað. Þarna fannst mér samtakamátturinn verða sérstaklega sýnilegur.
Ekki síður dýrmæt voru öll samtölin og nýju kynnin. Ég hitti fólk alls staðar að af landinu sem brennur fyrir sveitarstjórnarmálum, byggðaþróun og því að efla samfélögin sín. Þar fann ég mikinn samhljóm við þau verkefni og áherslur sem við hjá SASS vinnum að á hverjum degi. Það var bæði hvetjandi og lærdómsríkt að heyra ólík sjónarhorn, deila reynslu og finna hversu margt við eigum sameiginlegt þvert á landshluta.
Ég fór því af mínu fyrsta landsþingi reynslunni ríkari og með enn sterkari trú á mikilvægi samstarfs. Því þótt aðstæður séu ólíkar og hvert landsvæði hafi sína sérstöðu eigum við sameiginlega hagsmuni og getum lært mikið hvert af öðru. Sterk sveitarfélög og öflugir landshlutar, í góðu og traustu samstarfi við ríkið, gera samfélagið allt sterkara. Við erum einfaldlega sterkari saman.



