Til baka í yfirlit
16. mars 2016
Uppbyggingarsjóður Suðurlands - síðari úthlutun 2015

Í síðari úthlutun Uppbyggingarsjóðs Suðurlands árið 2015 bárust sjóðnum 122 umsóknir. Styrkur var veittur 66 verkefnum og er heildar fjárhæð styrkveitinganna rúmlega 28 milljónir. Úthlutað var 13 mkr. til 42 menningarverkefna og 15 mkr. til 24 nýsköpunarverkefna.
Uppbyggingarsjóður Suðurlands er samkeppnissjóður sem hefur það hlutverk að styrkja menningar-, atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni í landshlutanum. Við mat á umsóknum vísast til úthlutunarreglna og viðmiða um mat á umsóknum sem finna má á heimasíðu SASS. Verkefnastjórn Sóknaráætlunar á Suðurlandi fer með hlutverk úthlutunarnefndar en fagráð á sviði menningarmála annars vegar og atvinnuþróunar og nýsköpunar hins vegar, skila tillögum til verkefnastjórnar. Umsjón og ábyrgð Uppbyggingarsjóðsins er hjá Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga.
Sjá lista yfir samþykktar styrkveitingar hér
Nánari upplýsingar um úthlutunina veitir verkefnisstjóri Uppbyggingarsjóðsins, Þórður Freyr Sigurðsson, í síma 480-8200 eða með tölvupósti á netfanginu thordur@sudurland.is.
Fleiri fréttir

24. ágúst 2026
Ný stjórn og starfsfólk SASS stilla saman strengi
Lesa nánar

20. ágúst 2026
Beint frá býli dagurinn haldinn hátíðlegur sunnudaginn 23. ágúst
Lesa nánar

19. ágúst 2026
Opnað fyrir styrki til pólsk-íslenskra samstarfsverkefna
Lesa nánar

17. ágúst 2026
Ríkisstjórnin á Höfn: Árangur í innviðamálum en kallað á frekari aðgerðir
Lesa nánar