EN

Til baka í yfirlit

29. janúar 2015

Menntaverðlaun Suðurlands afhent í dag

Menntaverðlaun Suðurlands afhent í dag

Menntaverðlaun Suðurlands fyrir árið 2014 verða afhent á hátíðarfundi í Fjölbrautaskóla Suðurlands  í dag, 29. janúar,  en þar verður einnig afhentur styrkur úr Vísindasjóði Suðurlands. Hátíðarfundurinn hefst kl. 17:00 og stendur til kl. 18:00. Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, afhendir verðlaunin. Fjöldi góðra tilnefninga barst SASS að þessu sinni, en alls voru 11 einstaklingar, stofnanir og félagasamtök tilnefnd, sjá hér að neðan.

Nafn:

Ástæða tilnefningar:

Tilnefnandi:

Dr. Ásthildur Eva Bernharðsdóttir

Vegna afreka á sviði rannsókna og fræðslu í áhættu- og áfallastjórnun, vegna útgáfu og framlags við að koma á fót alþjóðlegu rannsóknar-tengdu framhaldsnámi til meistara- og doktorsprófs á Selfossi í samstarfi við Háskólafélag Suðurlands o.fl.

Rannsóknarmiðstöð í jarðskjálftaverkfræði: Símon Ólafsson og Ragnar Sigbjörnsson

Fræðsluráð Vestmannaeyja, Grunnskóli Vestmannaeyja og ÍBV

Íþróttaakademía Grunnskóla Vestmannaeyja og ÍBV – leið til eflingar formlegra samskipta milli Grunnskóla Vestmannaeyja og ÍBV og draga úr brottfalli úr íþróttum á viðkvæmum aldri og vímuefnaneyslu unglinga.

Vestmannaeyjabær

Guðbjörg Ísleifsdóttir

Áratuga starf við kennslu og umönnun barna á leikskólum.

Foreldrafélag Leikskólans á Laugalandi

Háskólafélag Suðurlands

Aukning búsetugæða og styrking efnahags á Suðurlandi með uppbyggingu þekkingarsamfélags. Sérstaklega uppbyggingu og átaksverkefnum á þeim hluta Suðurlands þar sem háskóla-starfsemi er með hvað minnstu móti eða á svæðinu frá Skógum til Kirkjubæjarklausturs.

Sigþrúður Harðardóttir

Heilsuleikskólarnir Brimver og Æskukot

Heilsueflandi starf í þágu yngstu íbúa sveitarfélagsins, jógakennslu og tónlistarstarf.

Sveitarfélagið Árborg, Sandra Dís Hafþórsdóttir og Hulda Gísladóttir og Viðar Helgason

Kristín Gísladóttir

Kennsluforritið Eldgrímur, sem hvetur til notkunar tölvu við lestrarnám. Gagnvirkur vefur, einkum ætlaður 7-9 ára börnum.

Skeiða- og Gnúpverjahreppur

Leikskólinn Bergheimar

Margvísleg starfsemi í tengslum við menntun og þroska barna á leikskólaaldri m.a. með sérstakri áherslu á stærðfræði og eflingu læsis.

Foreldrafélag Leikskólans Bergheima

Leikskólinn Laugalandi

ART, tækni og námsmat. Þróunarverkefni sem styrkt var af Sprotasjóði.

Foreldrafélag Leikskólans á Laugalandi

Margrét Tryggvadóttir

Áratuga farsælt starf við grunn-leik- og tónlistarskóla og merkilegt frumkvöðlastarf.

Skólaþjónusta Rangárvalla- og V-Skaftafellssýslu

Njálurefillinn

Sýnir Njálssögu með öðru sjónarhorni í samvinnu við öll skólastig og almenning. Sýnir bæði söguna og fornt handverk.

Rangárþing eystra

Silja Elsabet Brynjarsdóttir

Framúrskarandi frammistaða í tónlistarnámi og góð fyrirmynd. Tilnefningunni fylgir meðmælabréf

Ragnheiður Borgþórsdóttir