Til baka í yfirlit
3. september 2025
Staða byggðaþróunarfulltrúa í Uppsveitum Árnessýslu laus til umsóknar

Byggðaþróunarfulltrúi í Uppsveitum Árnessýslu
Sveitarfélögin Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur og Skeiða- og Gnúpverjahreppur í samstarfi við Samtök sunnlenskra sveitarfélaga auglýsa laust til umsóknar starf byggðaþróunarfulltrúa.
Byggðaþróunarfulltrúi veitir ráðgjöf og handleiðslu á sviði atvinnu- og byggðaþróunar, vinnur að upplýsingaöflun, miðlun upplýsinga og svæðisbundnum verkefnum á sviði byggðaþróunar, auk þess kemur hann að ferðatengdum málum og fjölmenningu. Byggðaþróunarfulltrúi sinnir verkefnum í samráði við sveitarfélögin fjögur og Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS). Einnig starfar fulltrúinn með samstarfshópi samtakanna og öðrum byggðaþróunarfulltrúum á Suðurlandi.
Um tímabundna ráðningu er að ræða til ársloka 2027 og starfshlutfall allt að 100%. Viðkomandi hefur aðalstarfsstöð á skrifstofum Bláskógabyggðar í Aratungu, Reykholti, en hefur einnig fasta viðveru á skrifstofum hinna sveitarfélaganna þriggja. Næsti yfirmaður er sveitarstjóri Bláskógabyggðar.
Hlutverk byggðaþróunarfulltrúa
- Veita ráðgjöf og handleiðslu á sviði atvinnuþróunar, nýsköpunar og menningarmála með sérstaka áherslu á umsækjendur og styrkþega Uppbyggingarsjóðs Suðurlands
- Aðkoma að fræðslu og þjálfun fyrir frumkvöðla
- Vinna við söfnun og greiningu upplýsinga á sviði atvinnu- og byggðamála
- Vinna að upplýsingamiðlun um stoðkerfi atvinnuþróunar, nýsköpunar, menningar og byggðamála
- Hvetja hagaðila innan svæðis til verkefnaþróunar og þátttöku í samstarfsverkefnum
- Styðja við stefnumörkun sveitarfélaganna á sviði byggðamála og framfylgir einstökum aðgerðum
- Vinna að og þróa svæðisbundin verkefni að eigin frumkvæði og í samstarfi við hagaðila
- Vinna að innleiðingu og eftirfylgni sameiginlegrar atvinnustefnu sveitarfélaganna
- Vinna að ferðatengdum málum, m.a. ráðgjöf og upplýsingamiðlun og þátttaka í faghópi sveitarfélaga á Suðurlandi og Markaðsstofu Suðurlands
- Aðkoma að fjölmenningarmálum, þ.m.t. gerð móttökuáætlunar
- Viðkomandi vinnur í samstarfi við oddvita og sveitarstjóra sveitarfélaganna fjögurra
Hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af verkefnastjórnun og/eða ráðgjöf æskileg
- Góð færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
- Góð tölvufærni og hæfni í tjáningu í ræðu og riti (á íslensku)
- Frumkvæði í starfi og samstarfsfús
- Hæfni í að tileinka sér nýja þekkingu og miðla henni áfram
- Þekking á nærsamfélaginu og áhugi á að efla sitt tengslanet
Æskilegt er að viðkomandi hafi fasta búsetu í Árnessýslu og geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til og með 11. september 2025. Umsókn skal skilað stafrænt á Alfreð (www.alfred.is) og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar veita Ásta Stefánsdóttir (asta@blaskogabyggd.is) 480-3000 og Ingunn Jónsdóttir (ingunn@sass.is) 480-8200.
Fleiri fréttir

24. ágúst 2026
Ný stjórn og starfsfólk SASS stilla saman strengi
Lesa nánar

20. ágúst 2026
Beint frá býli dagurinn haldinn hátíðlegur sunnudaginn 23. ágúst
Lesa nánar

19. ágúst 2026
Opnað fyrir styrki til pólsk-íslenskra samstarfsverkefna
Lesa nánar

17. ágúst 2026
Ríkisstjórnin á Höfn: Árangur í innviðamálum en kallað á frekari aðgerðir
Lesa nánar