Til baka í yfirlit
2. febrúar 2023
Sóknarfæri í nýsköpun og Úrgangsgagnatorg

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur styrkt Samtök sunnlenskra sveitarfélaga vegna tveggja verkefna. Annars vegar viðskiptahraðalsins Sóknarfæri í nýsköpun og hins vegar Úrgangsgagnatorgs.
Markmið verkefnisins Sóknarfæri í nýsköpun er að auka hvata til nýsköpunar á Suðurlandi, með sérstakri áherslu á hringrásarhagkerfið. Jafnframt því að kynna stoðkerfi nýsköpunar á Suðurlandi og hrinda af stað fjölbreyttum nýsköpunarverkefnum á sviði umhverfis-, orku- og loftslagsmála, sbr. nánari umfjöllun á heimasíðu ráðuneytisins hér.
Markmið verkefnisins Úrgangstorg er að samræma úrgangsgögn sveitarfélaga á landsvísu og vinna að opinberri birtingu þeirra gagna og stuðla að snjallvæðingu úrgangsmála á Suðurlandi á árinu 2023. Markmiðið með þessari vinnu er að flýta fyrir innleiðingu hringrásarhagkerfis á Íslandi og auka gagnsæi og yfirsýn sveitarfélaga í þessum málaflokk.
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra tilkynnti um styrkveitingu til Sóknarfæra í nýsköpun og Úrgangsgagnatorgs er hann var á ferð um Suðurland þann 31. janúar síðastliðinn.

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Ásgerður Kristín Gylfadóttir, stjórnarformaður SASS.

Fleiri fréttir

17. júlí 2026
Sveitarfélög um allt land krefjast svara um framtíð heilbrigðiseftirlitsins
Lesa nánar

13. júlí 2026
Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó
Lesa nánar

8. júlí 2026
FabLab-smiðjur á Suðurlandi fá tvær milljónir króna til að efla stafræna hæfni ungmenna
Lesa nánar

6. júlí 2026
Úr Hvolnum í Tjarnarbíó: VOX Rangárþing sýnir ÁST í höfuðborginni
Lesa nánar