Til baka í yfirlit
16. nóvember 2026
Söguslóðir Suðurlands mótast: Hvaða sögur búa á þínu svæði?

Markaðsstofa Suðurlands vinnur nú að þróun „Söguslóða Suðurlands“ sem hefur það markmið að tengja saman sögu, menningu, náttúru og mannlíf landshlutans í eina eða fleiri heildstæðar ferðaleiðir. Fyrsta vinnustofan sem fram fór á Hellu er þegar yfirstaðin en á næstu misserum verður haldin röð vinnustofa þar sem heimafólki gefst tækifæri til að móta ferðaleiðina og svara spurningunni: „Hvaða sögur búa á þínu svæði?“
Verkefnið, sem leitt er af Markaðsstofu Suðurlands, hlaut nýverið 6,5 milljóna króna styrk úr Byggðaáætlun (aðgerð C.1) í gegnum SASS. Tilgangurinn er að efla atvinnusköpun og nýsköpun, lengja dvalartíma ferðamanna á Suðurlandi, draga úr dagsferðum og tryggja að stærri hluti teknanna verði eftir í heimabyggð.
Hvaða sögur búa á Suðurlandi?
Ferðaleið sem þessari er ætlað að tengja saman staði, fólk og fortíð. Með Söguslóðum Suðurlands er stefnt að því að auka sýnileika þeirra staða sem búa yfir ríkri sögu og menningararfi.
Á vinnustofunum, sem opnar eru heimafólki, sveitarfélögum, söfnum, félagasamtökum og ferðaþjónustuaðilum, er unnið að því að kortleggja sögustaði, þjóðsögur, merkt fólk og atburði. Einnig eru rædd möguleg þemu og skoðað hvernig hægt er að byggja upp áhugaverðar og sjálfbærar söguleiðir.
Stafræn miðlun og menningararfur
Lokaafurð verkefnisins verður stafrænt kort, þemabundnar ferðaleiðir og aðgengilegur efnisbanki. Þar munu birtast valdir sögustaðir ásamt mögulegum undirleiðum. Einnig verður útbúin rafræn handbók fyrir ferðaþjónustufyrirtæki, söfn og sýningar, sem gerir samstarfsaðilum kleift að nýta efnið í sínar vörur og bjóða upp á sögutengdar upplifanir allan ársins hring. Formleg opnun Söguslóða Suðurlands er áætluð 2027.
Vinnustofur á næstunni: Næstu vinnustofur verða haldnar á eftirtöldum stöðum:
- Eyrarbakki: 18. nóvember kl. 16-18 í Rauða húsinu.
- Kirkjubæjarklaustur: 24. nóvember kl. 11-12 á Hótel Klaustri
Tímasetningar fyrir Vík, Laugarvatn, Vestmannaeyjar, Höfn og Öræfi verða auglýstar síðar á miðlum Markaðsstofu Suðurlands.
Fleiri fréttir

10. nóvember 2026
SASS og Sinfóníuhljómsveit Suðurlands í samstarfi við Þjóðaróperuna
Lesa nánar

10. nóvember 2026
Fyrsta Nýsköpunarstefna Suðurlands kynnt á Uppsprettu: Mikill kraftur í sunnlensku atvinnulífi
Lesa nánar

5. nóvember 2026
Selfoss og Suðurland, hvert stefnir? Málþing 10.nóvember
Lesa nánar

3. nóvember 2026
Ársþing SASS 2026: Fjölmargar ályktanir samþykktar um eflingu landshlutans
Lesa nánar