EN

Til baka í yfirlit

10. nóvember 2026

SASS og Sinfóníuhljómsveit Suðurlands í samstarfi við Þjóðaróperuna

samstarfi við Þjóðaróperuna

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS), Sinfóníuhljómsveit Suðurlands og Þjóðaróperan hafa undirritað viljayfirlýsingu um yfirgripsmikið samstarf er snýr að óperusýningum, fræðslu og almennri þróun tónlistarstarfs á Suðurlandi. Markmið samkomulagsins er að efla aðgengi Sunnlendinga að óperulist, styrkja menningarinnviði landshlutans og skapa metnaðarfull tækifæri fyrir heimafólk í tónlist.

Samstarfið til næstu þriggja ára var innsiglað með undirskrift viljayfirlýsingar í Skálholti þann 8. nóvember 2026 af Antoni Kára Halldórssyni formanni SASS, Guðmundi Óla Gunnarssyni, listrænum stjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Suðurlands, og Finni Bjarnasyni þjóðaróperustjóra.

Stórsýning í Skálholtskirkju markar upphafið

Fyrsta stóra skrefið í þessari vegferð er opnunarviðburður Þjóðaróperunnar, sýningin Undir sömu stjörnu, sem fram fór í Skálholtskirkju sama dag og skrifað var undir viljayfirlýsinguna. Uppsetning af þessari stærðargráðu í nánu samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Suðurlands er sögulegur viðburður. Hún skapar ómetanleg tækifæri til þekkingarmiðlunar og eflir fagleg tengsl tónlistarfólks. Aðilar eru sammála um að sá grunnur og þau tengsl sem mynduðust við undirbúning sýningarinnar verði nýtt áfram til að halda úti reglulegum tónlistarverkefnum á Suðurlandi. Jafnframt er þegar stefnt að annarri stórri óperusýningu í landshlutanum á næstu árum.

Áhersla á fræðslu, unga fólkið og sunnlenskt tónlistarfólk

Samkomulagið kveður á um mun víðtækara samstarf en uppsetningu staks viðburðar. Lögð er áhersla á að efla þátttöku og starfsþróun sjálfstætt starfandi tónlistarfólks á Suðurlandi, sem og kóra og tónlistarskóla á svæðinu. Horft er til þess að heimafólk taki beinan þátt í sýningum, handleiðslu og vinnustofum.

Þá verður unnið að árlegu fræðsluverkefni í samstarfi við fræðslusvið og skóla á Suðurlandi. Með því gefst börnum og ungmennum í landshlutanum reglulegt tækifæri til að kynnast óperulist af eigin raun og taka þátt í skapandi starfi. Horft er til þess að fræðsluverkefnið gæti orðið fastur liður í Barnamenningarhátíð Suðurlands sem haldin er í apríl ár hvert.

SASS heldur utan um eftirfylgni

Með þessu samstarfi stíga sveitarfélögin á Suðurlandi og menningarstofnanir skref í að auka aðgengi að óperulist óháð búsetu. SASS mun annast eftirfylgni viljayfirlýsingarinnar fyrir hönd sveitarfélaganna, í nánu samráði við Sinfóníuhljómsveit Suðurlands og Þjóðaróperuna. Stefnt er að sérstökum samráðsfundi strax í kjölfar sýningarinnar í Skálholti þar sem reynslan verður metin og næstu skref í menningarsókn Suðurlands formuð.

Myndir frá undirskrift viljayfirlýsingarinnar