Til baka í yfirlit
13. ágúst 2025
Samstarfs- og nýsköpunarstyrkir til íslenskunáms innflytjenda

Mennta- og barnamálaráðherra hefur auglýst styrki til umsóknar sem ætlaðir eru til að efla samstarf og nýsköpun í íslenskunámi fyrir innflytjendur. Úthlutað verður allt að 200 milljónum króna í verkefni sem ná til fjölbreyttra hópa innflytjenda með nýju námi, aðferðum eða verkfærum sem gerð verða aðgenilega. Gert er ráð fyrir samstarfi þvert á kerfi menntunar, atvinnulífs og/eða velferðar þar sem samstarfsaðilar geta verið skólar, fræðsluaðilar, sveitarfélög samtök, félög, stofnanir/fyrirtæki eða sérfræðingar.
Úthlutunin byggir á stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um að innflytjendur fái tækifæri til að læra íslensku og taka virkan þátt í samfélaginu. Byggir hún jafnframt á menntastefnu 2030 og aðgerðaáætlun í málefnum íslenskrar tungu fyrir árin 2024-2026, þar sem lögð er áhersla á fjölbreyttar leiðir fyrir ólíka hópa til að læra íslensku.
Sex áherlsusvið verkefna
Styrkir verða veittir til samstarfsverkefna sem tengjast a.m.k. einu af neðan greindum áherslu sviðum. Verða þau að fela í sér nýjung, byggja metinni þörf ásamt faglegri og rekstarlegri getu eins umsóknaraðila sem jafnframt ber ábyrgð á verkefninu. Umsóknir verða að tengjast a.m.k. einu af eftirfarandi sviðum:
- Samstarf um íslenskustuðning í starfs-, iðn-, tækni- eða undirbúningsnámi/starfþjálun.
- Samstarf um innleiðingu aðferða og þekkingar til að undirbúa einstaklinga 16 ára og eldri fyrir frekara nám eða störf með áherslu á læsi, menningu og samskipti í íslensku samfélagi.
- Samstarf um stafræna miðlun og/eða einstaklingsmiðaðan námsstuðning við unga innflytjendur til að fjöla tækifærum þeirra til virkrar þátttöku eða rjúfa eingangrun vegna skorts á íslenskukunnáttu.
- Samstarf um að auka vægi íslensku í daglegu lífi fullorðinna innflytjenda með sérstaka áherslu á þau sem vinna ein eða eru heimavinnandi til að efla félagsleg tengsl, bjargráð og samfélagslega þekkingu.
- Samstarf um íslenskunám fyrir foreldra barna og ungmenna í skóla- og frístundastarfi með það að markmiði að þau geti stutt börn sín í nýju málumhverfi og verið virkur hluti af því.
- Samstarf um íslenskunám starfsfólks með fjölbreyttan tungumála- eða menningarbakgrunn sem vinnur í skólum, í frístundastarfi eða við umönnun með sérstaka áherlus á uppeldi, menntun eða velferð.
Nánari upplýsingar um styrkina og umsóknarferlið er í frétt á vef stjórnarráðsins hér.
Fleiri fréttir

24. ágúst 2026
Ný stjórn og starfsfólk SASS stilla saman strengi
Lesa nánar

20. ágúst 2026
Beint frá býli dagurinn haldinn hátíðlegur sunnudaginn 23. ágúst
Lesa nánar

19. ágúst 2026
Opnað fyrir styrki til pólsk-íslenskra samstarfsverkefna
Lesa nánar

17. ágúst 2026
Ríkisstjórnin á Höfn: Árangur í innviðamálum en kallað á frekari aðgerðir
Lesa nánar