Til baka í yfirlit
24. janúar 2013
Ríkisstjórnarfundur á Selfossi á morgun
Ríkisstjórnin heldur reglulegan ríkisstjórnarfund á Selfossi á morgun, föstudag, 25. janúar. Fundurinn hefst kl. 09:00 á Hótel Selfossi. Rædd verða hefðbundin málefni en auk þess verkefni sem sérstaklega tengjast Suðurlandi.
Að loknum ríkisstjórnarfundi verður haldinn hádegisverðarfundur með sveitarstjórnarfólki á Suðurlandi þar sem skipst verður á skoðunum og fyrirspurnum svarað.
Blaðamannafundur verður haldinn á Hótel Selfossi kl. 13:30 að loknum fundi með sveitarstjórnarmönnum. Kynnt verða ýmis verkefni á Suðurlandi sem tengjast opinberum framlögum og samskiptum ríkis og sveitarfélaga á Suðurlandi.
Að þessu loknu er gert ráð fyrir því að ráðherrar hafi tækifæri til þess að heimsækja vinnustaði og/eða stofnanir á Suðurlandi.
Með fundinum á Selfossi er hringnum lokað, en ríkisstjórnarfundir hafa verið haldnir í öðrum landshlutum á kjörtímabilinu, á Akureyri, Ísafirði, í Reykjanesbæ og á Egilsstöðum.
Fleiri fréttir

19. nóvember 2026
Hulduheimar fyrstir leikskóla í Árborg til að hljóta ART-vottun
Lesa nánar

18. nóvember 2026
„Hættum að tala og byrjum að gera“ – Náttúruverndarstofnun blómstrar á landsbyggðinni
Lesa nánar

16. nóvember 2026
Söguslóðir Suðurlands mótast: Hvaða sögur búa á þínu svæði?
Lesa nánar

10. nóvember 2026
SASS og Sinfóníuhljómsveit Suðurlands í samstarfi við Þjóðaróperuna
Lesa nánar