Til baka í yfirlit
4. júlí 2014
Ný stjórn SASS

Ný stjórn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) var kosin á aukaaðalfundi samtakanna á Hótel Selfossi miðvikudaginn 2. júlí. Hana skipa Gunnar Þorgeirsson, oddviti Grímsnes- og Grafningshrepps sem var endurkjörinn formaður og Elín Einarsdóttir, oddviti Mýrdalshrepps er nýr varaformaður samtakanna. Aðrir í nýju stjórninni eru; Páll Marvin Jónsson Vestmannaeyjum, Sandra Dís Hafþórsdóttir Árborg , Eggert Valur Guðmundsson Árborg , Sæmundur Helgason Höfn í Hornafirði, Anna Björg Níelsdóttir Sveitarfélaginu Ölfusi, Unnur Þormóðsdóttir Hveragerðisbæ og Ágúst Sigurðsson Rangárþingi ytra.
Á fundinum fór Gunnar Þorgeirsson, formaður stjórnar SASS yfir störf fráfarandi stjórnar og Þorvarður Hjaltason, framkvæmdastjóri SASS fór yfir ársreikning samtakanna fyrir árið 2013.
Fundargerð aukaaðalfundarins er komin hér á heimasíðuna.

















Fleiri fréttir

24. ágúst 2026
Ný stjórn og starfsfólk SASS stilla saman strengi
Lesa nánar

20. ágúst 2026
Beint frá býli dagurinn haldinn hátíðlegur sunnudaginn 23. ágúst
Lesa nánar

19. ágúst 2026
Opnað fyrir styrki til pólsk-íslenskra samstarfsverkefna
Lesa nánar

17. ágúst 2026
Ríkisstjórnin á Höfn: Árangur í innviðamálum en kallað á frekari aðgerðir
Lesa nánar