Til baka í yfirlit
4. nóvember 2010
Menntaverðlaun Suðurlands - tilnefninga óskað
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga veita árlega verðlaun fyrir framúrskarandi framlag á sviði menntunar á Suðurlandi sem um leið er hvatning til frekari dáða. Verðlaunin verða veitt í þriðja sinn nú í vetur. Allir þeir sem koma að skólastarfi með einhverjum hætti geta fengið verðlaunin; grunnskólar, leikskólar, framhaldsskólar, símenntunarmiðstöðvar, háskólastofnanir, kennarar, einstaklingar eða hópar, skólaskrifstofur, sveitarfélög/skólanefndir, foreldrafélög o.fl.
Veitt verða peningaverðlaun sem nýtt verði til áframhaldandi menntunarstarfs. Jafnframt fylgir verðlaununum formleg viðurkenning. Verðlaunin verða afhent við formlega athöfn í tengslum við hátíðarfund Vísinda- og rannsóknarsjóðs Suðurlands 20 janúar nk.
Hér með er óskað eftir tilnefningum til verðlaunanna. Rétt til að tilnefna til verðlaunanna hafa allir þeir sem tengjast skóla- og menntunarstarfi með einhverjum hætti. Tilnefningum skal fylgja ítarlegur rökstuðningur. Menntamálanefnd SASS velur úr tilnefningum og veitir verðlaunin. Tilnefningar skulu hafa borist til Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, Austurvegi 56 Selfossi, eigi síðar en 1. desember nk.
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga
Deila frétt
Fleiri fréttir

18. september 2026
Breytingar á starfsemi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands um næstu áramót
Lesa nánar

17. september 2026
Orka náttúrunnar verður bakhjarl Uppsprettu Suðurlands
Lesa nánar

16. september 2026
Uppbyggingarsjóður Suðurlands hefur opnað fyrir umsóknir
Lesa nánar

16. september 2026
SS, Reykjagarður og Límtré Vírnet taka þátt í taka þátt í fyrstu lotu Kveikjunnar
Lesa nánar