Til baka í yfirlit
23. júní 2016
Kynning á fjármögnun fyrir sprotafyrirtæki

Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Rannís bjóða til opins kynningarfundar um Eurostars-2, möguleika á fjármögnun verkefna sprotafyrirtækja sem stunda sjálf rannsóknir og þróun. Einnig verður sagt frá þjónustu Enterprise Europe Network við sprotafyrirtæki.
Fundurinn verður fimmtudaginn 7. júlí 2016 kl. 9:00 – 10:30 í Nýsköpunarmiðstöð Íslands að Árleyni 8 á Keldnaholti.
Fundurinn er ætlaður væntanlegum umsækjendum Eurostars verkefna. Sérstaklega eru velkomin fyrirtæki í Samtökum sprotafyrirtækja og fyrirtæki á öllum frumkvöðlasetrum Nýsköpunarmiðstöðvar en fundurinn er öllum opinn. Umsóknarfrestur til Eurostars er opinn.
Sjá dagskrá hér
Deila frétt
Fleiri fréttir

8. september 2026
Ný tækifæri fyrir sunnlenska frumkvöðla: Eignarhaldsfélag Suðurlands gengur í IceBAN
Lesa nánar

7. september 2026
SASS hafnar skattahækkun á baðlón: Ógnar 400 heilsársstörfum á Suðurlandi
Lesa nánar

4. september 2026
Opnað fyrir 50 milljóna króna úthlutun til vinnustaðaklasa
Lesa nánar

3. september 2026
Flestar umsóknir frá Suðurlandi í Startup Landið
Lesa nánar