Til baka í yfirlit
27. ágúst 2014
Kortlagning auðlinda í ferðaþjónustu

Ferðamálastofa í samvinnu við Alta ýtir nú úr vör verkefni um kortlagningu auðlinda í ferðaþjónustu á Íslandi. Um er að ræða viðamikið og metnaðarfullt verkefni sem nýtast mun þeim sem að íslenskri ferðaþjónustu koma, bæði opinberum stofnunum sem og einkaaðilum. Verkefnið er byggt á forverkefni sem unnið var í Rangárþingi ytra, Rangárþingi eystra, Ásahreppi, Mýrdalshreppi og Skaftárhreppi árið 2012. Margt var hægt að læra af forverkefninu og í kjölfar þess voru bæði verklag og aðferðafræði endurskoðuð og ákveðnar breytingar gerðar. Til að gæta samræmis í skráningu á landsvísu verður farið í að lagfæra skráningar m.t.t. til þeirra breytinga sem gerðar hafa verið. Forsvarsmenn verkefnisins leita til sveitarfélaga og annarra hagsmunaaðila á forverkefnissvæðinu um tilnefningu fulltrúa í svæðisbundna samráðshópa verkefnisins. Fulltrúar Ásahrepps verða þau Renate Hannemann og Björgvin G. Sigurðsson.

Deila frétt
Fleiri fréttir

18. september 2026
Breytingar á starfsemi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands um næstu áramót
Lesa nánar

17. september 2026
Orka náttúrunnar verður bakhjarl Uppsprettu Suðurlands
Lesa nánar

16. september 2026
Uppbyggingarsjóður Suðurlands hefur opnað fyrir umsóknir
Lesa nánar

16. september 2026
SS, Reykjagarður og Límtré Vírnet taka þátt í taka þátt í fyrstu lotu Kveikjunnar
Lesa nánar