Til baka í yfirlit
30. ágúst 2017
Kirkjubæjarstofa

Markmið
Að vinna að starfssemi menningarmála og samfélagsþróunar innan Kirkjubæjarstofu og við þróun þekkingarseturs á Kirkjubæjarklaustri.
Tengsl við sóknaráætlun
Ein megin áhersla Sóknaráætlunar er að auka fjölbreytni í atvinnulífi, mannlífi, menningu og menntun á Suðurlandi. Sérstök þörf er á að vinna að þeim áherslum í Skaftárhreppi samhliða átaksverkefni um Skaftárhrepp til framtíðar.
Árangursmælikvarðar (afurðir og áhrif á samfélagið)
Að starfssemi Kirkjubæjarstofu haldi áfram og sé það frumkvæði sem þarf til að draga fram önnur verkefni sem efla fjölbreytni í atvinnumálum, mannlífi og menningu á svæðinu. Afurðir verkefnisins verða einnig vörður í þeirri vegferð er að þróa áfram þekkingarsetur á Kirkjubæjarklaustri.
Framkvæmdaraðili
Kirkjubæjarstofa
Samstarfsaðili
SASS, Skaftárhreppur og verkefnastjóri Skaftárhrepps til framtíðar (brothættar byggðar í Skaftárhreppi).
Heildarkostnaður
3.500.000 kr.
Þar af framlag úr Sóknaráætlun
2.500.000 kr.
Ár
2015
Tímarammi
Árið 2015
Fleiri fréttir

24. ágúst 2026
Ný stjórn og starfsfólk SASS stilla saman strengi
Lesa nánar

20. ágúst 2026
Beint frá býli dagurinn haldinn hátíðlegur sunnudaginn 23. ágúst
Lesa nánar

19. ágúst 2026
Opnað fyrir styrki til pólsk-íslenskra samstarfsverkefna
Lesa nánar

17. ágúst 2026
Ríkisstjórnin á Höfn: Árangur í innviðamálum en kallað á frekari aðgerðir
Lesa nánar