Til baka í yfirlit
9. mars 2018
Hugmyndasamkeppni

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga, Orka náttúrunnar og Nýsköpunarmiðstöð Íslands efna til hugmyndasamkeppni um nýtingu varmaorku á Suðurlandi.
Tilgangur samkeppninnar er að fá fram hugmyndir um nýtingu varmaorku sem finnst víða á Suðurlandi og býður upp á fleiri tækifæri en nýtt eru í dag. Markmiðið er að nýta betur verðmætin sem eru í orkunni, auka fjölbreytni í atvinnulífi með umhverfismál að leiðarljósi og vinna að nýsköpun í orkutengdri starfsemi.
Heildarupphæð verðlauna er 3.000.000 kr. og verða fyrstu verðlaun að lágmarki 1.500.000 kr. Tillögum skal skila með tölvupósti á netfangið samkeppni@sass.is eigi síðar en þriðjudaginn 17. apríl 2018.
Ítarlegri upplýsingar má finna á slóðinni www.sass.is/hugmyndasamkeppni

Fleiri fréttir

2. nóvember 2026
DC NEST: nýtt Evrópuverkefni um sjálfbæra uppbyggingu gagnavera á norðurslóðum
Lesa nánar

30. október 2026
Ársþing SASS ályktar: „Suðurland er ekki hraðbanki ríkissjóðs“
Lesa nánar

30. október 2026
Leikfélag Sólheima hlýtur Menningarverðlaun Suðurlands 2026
Lesa nánar

21. október 2026
Ákall um samstarf – ekki bara samtal
Lesa nánar