Til baka í yfirlit
11. nóvember 2010
Heilbrigðisráðherra afhent mótmæli liðlega 10 þúsund Sunnlendinga gegn boðuðum niðurskurði í heilbrigðismálum

Fréttatilkynning 11.11.2010
Í dag afhentu Sunnlendingar Guðbjarti Hannessyni heilbrigðisráðherra lista með mótmælum íbúa á Suðurlandi gegn áformuðum niðurskurði á fjárframlögum til heilbrigðisþjónustunnar á Suðurlandi. Við sama tækifæri voru ráðherra einnig afhentir undirskriftalistar úr fleiri heilbrigðisumdæmum. Alls skrifaði10.071 íbúi nafn sitt á mótmælalistana á Suðurlandi sem jafngildir því að liðlega helmingur kosningabærra manna í heilbrigðisumdæmi Suðurlands hafi skrifað undir mótmælin en alls eru um 19.200 íbúar á svæðinu 18 ára og eldri. Þá höfðu 2560 eintaklingar einnig skráð mótmæli sín á Facebooksíðu gegn ..... niðurskurðinum á hádegi í dag.
Sunnlendingar fjölmenntu að Alþingishúsinu í rútum og einkabílum og fór gamall sjúkrabíll fyrir lestinni sem tákn um að með boðuðum niðurskurði sé verið að færa heilbrigðisþjónustu á Suðurlandi 60 ár aftur í tímann. Undirskriftirnar voru færðar ráðherra á sjúkrabörum og var heilbrigðisráðherra, ríkisstjórn og öðrum alþingismönnum jafnframt flutt drápa sem var samin og flutt af Sigurgeiri Hilmari Friðþjófssyni.Mjög mikill stuðningur hefur verið við þessi mótmæli á öllu Suðurlandi en auk sveitarfélaganna stóðu stéttarfélögin á Suðurlandi, félög heilbrigðisstarfsfólks og Samband sunnlenskra kvenna að undirskriftasöfnuninni auk fjölmargra annarra félaga og samtaka á Suðurlandi. Þá hafa fyrirtæki og stofnanir á svæðinu lagt þessu átaki lið sitt. Elfa Dögg Þórðardóttir formaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga ávarpaði heilbrigðisráðherra fyrir hönd landsbyggðarinnar. Í ávarpi sínu sagði Elfa Dögg m.a. að ef boðaður niðurskurður næði fram að ganga fæli hann í sér gróf mannréttindabrot gagnvart íbúum landsbyggðarinnar. Skoraði hún á ríkisstjórnina að standa með sjúkrahúsunum á landsbyggðinni og tryggja að íbúar þar fengju áfram að njóta þeirra grundvallarmannréttinda sem lög kveða á um.

Fleiri fréttir

24. ágúst 2026
Ný stjórn og starfsfólk SASS stilla saman strengi
Lesa nánar

20. ágúst 2026
Beint frá býli dagurinn haldinn hátíðlegur sunnudaginn 23. ágúst
Lesa nánar

19. ágúst 2026
Opnað fyrir styrki til pólsk-íslenskra samstarfsverkefna
Lesa nánar

17. ágúst 2026
Ríkisstjórnin á Höfn: Árangur í innviðamálum en kallað á frekari aðgerðir
Lesa nánar