EN

Til baka í yfirlit

18. nóvember 2026

„Hættum að tala og byrjum að gera“ – Náttúruverndarstofnun blómstrar á landsbyggðinni

Flutningur opinberra starfa á landsbyggðina skilar afburðaárangri ef marka má fyrsta starfsár Náttúruverndarstofnunar. Stofnunin, sem tók til starfa í byrjun árs 2025 með höfuðstöðvar á Hvolsvelli, hefur á mettíma byggt upp öfluga starfsemi og opnað nýjar sýningar í verðlaunuðum gestastofum. Velgengnin sannar rækilega að stjórnsýsla og þekkingarstörf ríkisins dafna einkar vel á Suðurlandi.

Þegar hluti Umhverfisstofnunar og Vatnajökulsþjóðgarður voru sameinuð í eina stofnun um áramótin 2024/2025 var tekin sú ákvörðun að staðsetja höfuðstöðvar nýrrar Náttúruverndarstofnunar á Hvolsvelli. Stofnunin fer nú með náttúruvernd og veiðistjórnun um allt land, auk þess að hafa umsjón með um 130 friðlýstum svæðum. Ákvarðanir sem varða verndun og sjálfbæra nýtingu íslenskrar náttúru eru því í dag teknar á landsbyggðinni.

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) settust niður með Sigrúnu Ágústsdóttur forstjóra Náttúruverndarstofnunar og ræddu um þetta viðburðaríka fyrsta ár, áskoranirnar og þau gríðarlegu tækifæri sem felast í því að færa stjórnsýsluna nær samfélaginu og náttúrunni sjálfri.

Sigrún ávarpar gesti á opnunarhátíð Náttúruverndarstofnunar í Hvolnum á Hvolsvelli
Mynd: Náttúruverndastofnun

Þreföld verðlaun og „Línu Langsokk“-hugarfar

Að setja á laggirnar nýja ríkisstofnun, ráða starfsfólk, sinna rekstri gestastofa og halda úti skilvirkri stjórnsýslu á örfáum mánuðum er þrekvirki. Þrátt fyrir mikið umrót fékk stofnunin nýverið þrjár eftirsóttar viðurkenningar. Þar bar hæst hönnunarverðlaunin sem „Besta fjárfestingin í hönnun 2025“ fyrir uppbyggingu nýrra gestastofa víða um land. Þá lenti stofnunin í öðru sæti fyrir þann myndheim sem birtist í kynningarefni hennar, auk þess að hljóta viðurkenningu fyrir áherslu á jafnrétti kynjanna.

„Þetta gladdi okkur mikið og gaf orku í hinu daglega brasi,“ segir Sigrún og leggur áherslu á að verðlaunin séu fyrst og fremst áminning um gríðarlega mikla vinnu starfsfólks og góðar ákvarðanir stjórnvalda varðandi uppbyggingu gestastofa á landsbyggðinni.

Aðspurð um galdurinn á bak við þennan hraða og árangur stendur ekki á svari: „Reynslumikið og hæfileikaríkt starfsfólk, hugrekki, óbilandi bjartsýni í stíl við hugarfar Línu Langsokks, seigla og gríðarlegur áhugi á verkefnunum,“ útskýrir hún og hrósar starfsmannafélaginu sérstaklega fyrir frumkvæði og hugmyndaauðgi. „Við erum á 16 starfsstöðum og höfum ekki fjármagn eða tíma til að hittast nema örsjaldan. Við höfum parað starfsstöðvar saman út frá samgöngum og landshlutum og þannig er hægt að eiga góðar stundir saman.“ Hún bendir á að við krefjandi breytingar þurfi stjórnendur stundum hreinlega að passa sig á að þvælast ekki fyrir góðum hugmyndum starfsfólksins.

Náttúruverndarstofnun hlýtur viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun á Hönnunarverðlaunum Íslands 2025 fyrir framúrskarandi nálgun við uppbyggingu gestastofa með hönnun og arkitektúr að leiðarljósi.“

Mynd Sunna Ben

Hindranir við mönnun á landsbyggðinni einungis hugrænar

Sú mýta heyrist oft að erfitt sé að manna sérhæfð þekkingarstörf á landsbyggðinni. Sigrún vísar því alfarið á bug og segir reynslu Náttúruverndarstofnunar á Hvolsvelli sýna allt aðra og mun bjartari mynd.

„Það hafa komið upp hindranir, en þær eru fyrst og fremst hugrænar – það er að segja gamalgrónar hugmyndir um að það sé erfitt að manna stöður fagfólks og sérfræðinga á landsbyggðinni. Það sem við höfum auglýst hér á Suðurlandi hefur gengið mjög vel að manna af fólki héðan af Suðurlandi. Nú erum við til dæmis með tvo af þremur starfsmönnum á mannauðssviði hér á Hvolsvelli, þar á meðal sviðsstjóra mannauðssviðsins sem og umdæmisstjóra fyrir Suðvesturland og Suðurland.“

Hún segir það sama gilda um innviði á svæðinu. Aðstaðan hafi verið leyst farsællega og sveitarfélagið Rangárþing eystra hafi sýnt mikla lipurð og staðið þétt við bakið á nýju stofnuninni frá fyrsta degi.

Starfsfólk í „höfuðstöðvum“ Náttúruverndarstofnunar á Hvolsvelli.

f.v. Sigrún Ágústsdóttir forstjóri, Jón G. Valgeirsson umdæmisstjóri fyrir Suðvesturland og Suðurland, Ragnheiður Björk Sigurðardóttir svæðissérfræðingur, Saga Sigurðardóttir sérfræðingur á mannauðssviði og Margrét Jóna Ísólfsdóttir sviðsstjóri mannauðssviðs.

Staðarþekkingin er verðmæt auðlind

SASS og önnur landshlutasamtök hafa í gegnum tíðina lagt ríka áherslu á að færa þurfi opinber störf út í landshlutana til að nýta þá miklu þekkingu sem þar býr og efla nærsamfélögin. Sigrún tekur heilshugar undir þetta og fagnar framsýni og hugrekki ráðuneytisins.

„Að vera í nálægð við viðfangsefnið er nauðsynlegt, auðvitað einnig fyrir forstjóra. Að vera í nálægð við bændasamfélagið, ferðaþjónustuna og náttúruna er lykilatriði. Ég horfi á staðarþekkingu sem sérstök verðmæti sem gera starfsfólk hæfara til starfa í sínu nærsamfélagi fyrir þessa stofnun,“ segir Sigrún.

Persónulega er þetta verkefni Sigrúnu afar kært, en hún er sjálf fædd og uppalin á Hvolsvelli. Hún segir það hafa verið ljúft að snúa til baka, þótt fólk sé stundum hissa á að hún muni ekki nöfn allra eftir áratuga fjarveru.

„Persónulega tengingin við svæðið gerir það að verkum að skuldbindingin verður meiri en ella. Málverkið sem ég horfi á þegar ég keyri inn í Fljótshlíðina til dæmis, eða niður í Landeyjar, upplifi ég svo miklu sterkar en áður eftir þessa fjarveru. Það er ekkert undarlegt að sterkar tilfinningar vakni varðandi öll náttúruverndarmál sem upp koma í samfélaginu. Þannig á það einmitt að vera.“

Umdæmi

Friðlýstum svæðum er skipt upp á milli tíu umdæma sem eru eftirfarandi: 1. Vestfirðir 2. Snæfellsjökulsþjóðgarður og Vesturland 3. Mývatnssveit og Norðurland 4. Norðurhálendi Vatnajökulsþjóðgarðs 5. Jökulsárgljúfur Vatnajökulsþjóðgarðs 6. Austurland og Austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs 7. Suðursvæði (austur), Vatnajökulsþjóðgarðs 8. Suðursvæði (vestur) Vatnajökulsþjóðgarðs 9. Vestursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs 10. Suðvesturland og Suðurland.

Skilaboð til stjórnvalda: Menntun og atvinna haldist í hendur

Að lokum var Sigrún innt eftir því hvaða ráð hún myndi gefa stjórnvöldum sem nú íhuga að færa enn fleiri opinber störf eða heilar stofnanir út á land í kjölfar þessarar velgengni á Suðurlandi.

„Hætta að tala, bara gera. Það virðist vera að starfsfólk á landsbyggðinni staldri lengur við í störfum sínum sem byggir upp þýðingarmikinn reynslubanka og tengslanet.“

Jafnframt leggur hún til að „við sem samfélag“ hugsum um tækifæri í menntun og atvinnu í meira samhengi en nú er gert. „Það er á menntaskólaárunum sem tengslin við heimabyggð fara að rofna. Það skiptir máli að efla tækifæri til að sinna háskólanámi í heimabyggð með beinni hliðsjón af atvinnutækifærum viðkomandi byggðar,“ segir Sigrún Ágústsdóttir að lokum.

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga óska Náttúruverndarstofnun, starfsfólki hennar og Sigrúnu alls hins besta á komandi árum. Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs og verðum áfram ötull talsmaður þess að fjölga spennandi þekkingarstörfum í okkar öfluga landshluta.